Fotbolti.net
Leó Örn Þrastarson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ólafsvíkurvöllur
Skýjað og logn
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
2 - 0
Þór
Þór
Gonzalo Zamorano Leon (víti) 23'1 - 0Gonzalo Zamorano Leon 73'2 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Mikilvægur sigur heimamanna í toppbaráttunni

Hvað réði úrslitum?

Færanýting heimamanna tel ég að það sem réði úrslitum. Ótrúlegt hins vegar að fleiri mörk hafi ekki veriuð skoruð í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Gonzalo

Skoraði tvennu en hins vegar hefði hann getað sett þrennuna en hann klikkaði á dauðafæri.

2. Sasha Litwin

Var mjög góður á miðjunni. Fiskaði vítið og átti geggjaðar sendingar fram völlinn.

Atvikið

Gonzalo og Kwame eiga þann heiður. Gonzalo var sloppinn í gegn á móti Aroni og reynir að vippa yfir hann en gekk alls ekki upp. Sama má segja um Kwame sem klúðrar líka dauðafæri 30 sekúndum eftir að Gonzalo klikkaði. Ég var enn að skrifa klúðrið hans Gonzalo þegar Kwame klikkar síðan.

Hvað þýða úrslitin?

Ólsarar lyfta sér upp í 3. sæti með 38 stig, 4 stigum á eftir HK og 5 stigumn á eftir ÍA.

Vondur dagur

Enginn á neitt sérstaklega vondan dag í þetta skiptið.

Dómarinn - 7,5

Helgi Mikael stóð sig nokkuð vel í dómgæslunni í dag. Margt sem var rétt hárrétt hjá honum en stundum vantaði aðeins að sjá spjöldin í sumum af þessum brotum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.