SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir sluppu með stig frá Akureyri í sex marka leik
Hvað réði úrslitum?
Valur er ekki þekkt fyrir að gefast upp og gerðu það ekki í dag. Lentu tvisvar undir í leiknum en komu jafn harðan til baka. Áræðinsleysi í vörn KA í horninu þar sem Valur jafnar í lokin spilar líka stóra rullu, það fór enginn í boltann.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Freyr Sigurðsson
Kristinn Freyr átti mjög góðan leik, skorar tvö mörk og leggur eitt upp í hörkuleik. Átti mjög góðan leik fyrir Valsara og gerði vel í sínu fyrir utan flott mörk og stoðsendingu.
2. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Það er erfitt að gera upp á milli Hallgríms og Daníels í þessum leik. Daníel var eins og herforingi inn á miðju KA. Hallgrímur átti sömuleiðis frábæran leik fyrir KA, ógnandi og skorar mikilvægt jöfnunarmark sem gaf KA byr undir báða vængi upp á framhaldið í leiknum og þess vegna fær hann þetta kredit.
Atvikið
Það er hægt að setja jöfnunarmarkið hér en atvikið þar sem Bjarni rotast eftir skot frá Kristinn Freyr af stuttu færi trompar það. Mjög ógnvekjandi sjón en boltinn barst aftur til Valsmanna eftir að hann lenti í hausnum á Bjarna. Þeir voru í kjörstöðu að setja boltann í netið þá en réttilega stoppaði Einar Ingi leikinn. Á þeim tímapunkti hefði Valur líklegast komist í 2-0 og leikurinn hefði spilast öðruvísi.
Hvað þýða úrslitin?
Valur heldur toppsætinu en Stjarnan fylgir fast á eftir og eru nú bara stigi á eftir Val eftir leiki dagsins. KA bæta við sig stigi en eru áfram í 7. sætinu og sigla nokkuð lygnan sjó í deildinni.
Vondur dagur
Bjarni Ólafur átti ekki sérstakan dag í vörn Vals. Átti hörmulega sendingu til baka á Anton sem Hallgrímur komst inn í og skorar jöfnunarmarkið. Hrannar fékk líka nánast frípassa úti á kanti þegar hann á fyrirgjöfina sem leiðir til mark nr. tvö hjá KA.
Dómarinn - 4
Einar Ingi hélt ekki góðri línu í dag, dæmdi á eitt og svo sleppti hann samskonar broti stuttu síðar. Fannst hann ekki hafa nægjanlega gott vald á leiknum. Spurning hvort Valur átti að fá víti undir lokin, hvort Guðjón Pétur hafi átt að fá rautt og fleiri svona spurningar sem valda því að Einar Ingi fær fjarka í dag.



