SKÝRSLAN: Kaflaskipt í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik var lengst af leiks talsvert öflugra liðið en náði ekki að koma inn öðru markinu og var refsað. Blikar voru of ragir við að gera út um leikinn og tvöföld skipting Óla Stefáns í hálfleik hleypti lífi í Grindvíkinga.
Bestu leikmenn
1. Kolbeinn Þórðarson - Breiðablik
Átti stoðsendinguna í marki Blika. Þessi kröftugi leikmaður hefur staðið sig vel með Kópavogsliðinu á tímabilinu.
2. Sito - Grindavík
Sóknarleikur Grindavíkur batnaði mikið eftir innkomu Sito. Breytti að mörgu leyti leiknum.
Atvikið
Mistök Damir Muminovic sem gerðu það að verkum að Grindavík jafnaði. Sjaldséð mistök hjá þessum öfluga miðverði reyndust dýrkeypt.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík siglir lygnan sjó um miðja deild en Breiðablik heldur sér í þriðja sætinu.
Vondur dagur
Matthías Örn Friðriksson og Aron Jóhannsson í Grindavík. Eftir dapra frammistöðu Grindavíkur í fyrri hálfleik var þeim fórnað og spilamennska gestaliðsins var mun betri í seinni hálfleik. Færeyingurinn Rene Joensen fær líka pláss þarna.
Dómarinn - 10
Vilhjálmur Alvar snýtti þessum leik.



