SKÝRSLAN: Stjörnumenn nær toppnum - Fjölnismenn nær falli
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en áttu varla breik í þeim seinni. Stjarnan er einfaldlega bara gæðameira lið og það var návæmlega það sem að skar útum þennan sigur.
Bestu leikmenn
1. Daníel Laxdal
Frábær í vörn Stjörnumanna. Fórnaði sér í alla bolta og spilaði vel út. Frábær frammistaða hjá Danna í dag.
2. Þórir Guðjónsson
Einn af ljósu punktum Fjölnismanna í dag. Skoraði gott mark sem að hlýtur að vera gott fyrir sjálfstraustið hans, en Fjölnir þarf á því að halda restina af mótinu.
Atvikið
Í seinni hálfleik skoraði Baldur Sigurðsson mark sem að Ívar Orri dæmdi gott og gilt. Eftir smá samtal við línuvörðinn flautaði hann það hins vegar af. Sá ekki nákvæmlega útaf hverju.
Hvað þýða úrslitin?
Stjörnumenn eru eini stigi á eftir Völsurum þar sem að þeir gerðu jaftefli á Akureyri. Þrjár umferðir eru eftir og stefnir allt í rosalegan lokakafla. Fjölnismenn eru hins vegar fimm stigum frá öruggu sæti og þarf ansi margt að gerast til að félagið falli ekki.
Vondur dagur
Birnir Snær fann sig ekki í þessum leik. Virkaði pirraður oft á tíðum og reyndi að gera hlutina alltof flókna. Þá var Bergsveinn Ólafsson ekki góður í dag heldur.
Dómarinn - 7,5
Lítið út á Ívar að setja. Hafði bara flott tök á leiknum og var með flesta dóma rétta. Eins og fyrr segir veit ég ekki alveg hvað gerðist í markinu sem að hann dæmdi af en við treystum kauða.



