SKÝRSLAN: Falldraugurinn fjarlægist ÍBV og Víking
Hvað réði úrslitum?
Ábótavant í færanýtingu réði úrslitum. ÍBV var heilt yfir sterkara en bæði lið fengu færi til að skora sigurmarkið.
Bestu leikmenn
1. Geoffrey Castilloin
Var mjög sprækur hjá Víkingum og skoraði gott mark. Tók nokkra góða spretti og var auðvelt að finna hann í svæðum.
2. Sigurður Arnar Magnússon
Það voru fáir að skara fram úr eða leika af sér í dag. Sigurður Arnar var góður í vörn ÍBV og átti enn einn góða leikinn á þessu tímabili.
Atvikið
Undir lokin var Víkingur rétt búið að stela sigrinum! Alex Freyr átti skot sem var bjargað og var Castillion rétt búinn að ná að fylgja eftir áður en var bjargað.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir tapaði og því eru bæði lið einu stigi fjær falli en þegar þau vöknuðu í morgun. FJölnir er með 16 stig, Víkingur 21 og ÍBV 23 stig. Ekkert lið hefur fallið með 23 stig úr Pepsi deildinni.
Vondur dagur
Aron Már Brynjarsson átti ekki góðan dag vegna samstuðsins sem hann lenti í. Enginn leikmaður átti slakan leik og því fer þetta á Aron sem þurfti á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa, eftir því sem ég best veit, rotast.
Dómarinn - 4,5
Virtist ekki alltaf með athygli á leiknum og sleppti oft spjöldum eða að dæma og dæmdi svo þegar mátti jafnvel halda áfram með leikinn. Hallaði á hvorugt lið en er óskað eftir betri frammistöðu frá Pétri en þetta.



