Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Pepsi-Max deild kvenna
Nettóvöllurinn
Blautt með dass af vind til að krydda tilveruna
Keflavík
Keflavík
2 - 0
Fylkir
Fylkir
Sophie Mc Mahon Groff 39'1 - 0Sveindís Jane Jónsdóttir 59'2 - 0
Dómari: Steinar Berg Sævarsson

SKÝRSLAN: Keflavík sendir Fylkiskonur undir rauðu línuna

Hvað réði úrslitum?

Gæðin sem Sveindís Jane Jónsdóttir býr yfir kláraði þennan leik fyrir heimakonur. Úrslitin í raun aldrei í hættu og með öllu verðskuldaður.

Bestu leikmenn

1. Sveindís Jane Jónsdóttir

Stórkostleg í kvöld. Fylkir réði ekkert við hana og var hún lang hættulegasti leikmaður leiksins. Gæðin í þessari stelpu eru ótrúleg. Mark og stoðsending í dag.

2. Natasha Moraa Anasi

Akkeri í liði Keflavíkur. Ekkert sem fór framhjá fyrirliðanum í kvöld og komst frábærlega frá sínu.

Atvikið

Annað markið. Þessi sprettur hjá Sveindísi Jane og hvernig hún kláraði svo dæmið var framúrskarandi.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík lyftir sér upp fyrir rauðu línuna og skilja Fylkisstúlkur eftir undir henni.

Vondur dagur

Erfitt að skella skuldinni á einhverja eina en Fylkisliðið í dag átti ekkert sérstakan leik sem heild og fær því þennan vafasama heiður sem heild. Ekki hægt að pikka einhverja einstaklinga út sérstaklega.

Dómarinn - 7

Heilt yfir flottur leikur hjá Steinari og hans liði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.