SKÝRSLAN: Sanngjörn niðurstaða í Víkinni
Hvað réði úrslitum?
Færanýtingin hjá báðum liðum var ekki upp á 10 í þessum leik og því fór sem fór. Jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Andri Tryggvason
Þessi efnilegi leikmaður var gríðarlega flottur sóknarlega í kvöld. Átti nokkra afbragðs spretti og skoraði auk þess gott mark.
2. Ágúst Eðvald Hlynsson
Margir sem koma til greina hér en Ágúst fær heiðurinn í þetta sinn. Fínn leikur hjá þessum efnilega leikmanni. Fiskaði nokkrar aukaspyrnur og var ógnandi í leiknum. Góð stoðsending í markinu hjá Guðmundi.
Atvikið
Nokkur stór atvik í þesum leik en markvarsla Þórðar gegn Castillion var ansi góð og mikilvæg. Þórður átti flottan leik heilt yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Staða liðana breytist lítið eftir þennan leik og því bæði lið eflaust ósátt að fá ekki meira út úr leiknum. Færin voru svo sannarlega til staðar.
Vondur dagur
Ólafur Ingi Skúlason fær þetta í dag. Ég tók varla eftir honum í leiknum og fundu miðjumenn Víkings ansi oft hættuleg svæði fyrir framan vörn Fylkis. Leikmaður með svona gæði á að sjást meira.
Dómarinn - 6
Skýtinn lína hjá Helga í dag en ég gef honum það að þetta var erfiður og hraður leikur að dæma. Engu að síður sleppti hann nokkrum augljósum spjöldum og var oft á tíðum með skrýtna dóma.



