Fotbolti.net
@sarakristinvSara Kristín Víðisdóttir
Inkasso deild kvenna
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
0 - 1
Augnablik
Augnablik
0 - 119' Þórdís Katla Sigurðardóttir
Dómari: Guðmundur Ragnar Björnsson

SKÝRSLAN: Mikilvægur sigur fyrir Augnablik

Hvað réði úrslitum?

Augnabliksstúlkur mættu bara mun betur tilbúnar í fyrrihálfleikinn. Skagastúlkur virtust bara alls ekki tilbúnar í leikinn í upphafi og þeim var bara refsað fyrir það.

Bestu leikmenn

1. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir

Skapaðist hætta í hvert skipti sem hún fékk boltann en því miður fyrir Augnablik lokaði ÍA vel á hana í þeim síðari

2. Telma Ívarsdóttir

Var virkilega örugg í markinu og stýrði liðinu sínu mjög vel

Atvikið

Víti eða ekki víti. ÍA virtist eiga að fá víti undir lok leiks sem hefði geta tryggt þeim eitt stig út úr þessum leik sem hefði verið betra en ekki neitt

Hvað þýða úrslitin?

Með þessum sigri kemst Augnablik upp fyrir ÍA og upp í fimmta sætið. Einnig komast þær lengra frá fallbaráttunni með þessum sigri.

Vondur dagur

Í raun var þetta vondur dagur fyrir stóran part af liði Skagastúlkna, þ.e.a.s. í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur hjá þeim var mun betri en Augnabliks liðið er vel skipulagt og komst Skagaliðið ekki til baka eftir dapran fyrri hálfleik.

Dómarinn - 5

Átti heilt yfir ágætisleik
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.