Fotbolti.net
@BenniThordar Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Mustad völlurinn
Grindavík
Grindavík
1 - 1
ÍA
ÍA
0 - 126' Hörður Ingi Gunnarsson Oscar Manuel Conde Cruz 28'1 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Stigunum skipt bróðurlega í Grindavík.

Hvað réði úrslitum?

Öflugur varnarleikur beggja liða og frábærar markvörslur. Liðin spila bæði mjög öflugan varnarleik og gáfu ekki mörg færi á sér en báðir markmennirnir áttu frábærar vörslur

Bestu leikmenn

1. Hörður Ingi Gunnarsson(ÍA)

Hörður Ingi var mjög góður í kvöld. Varðist vel og fór reglulega upp kantinn eins og venjulega. Skoraði gull fallegt mark.

2. Marc Mcausland(Grindavík)

Marc var mjög góður í vörn Grindvíkinga í kvöld og ekkert sem fór framhjá honum.

Atvikið

Ég verð að velja tvö og það er sitthvor markvarslan. Fyrst var það Vladan í marki Grindavíkur sem átti frábæra markvörslu á 43.mínútu eftir skot frá Tryggva. Það var svo á 70.mínútu sem Árni í marki ÍA varði skalla frá Rodrigo af stuttu færi frábærlega.

Hvað þýða úrslitin?

Úrsltin breyta engu um stöðu liðanna í deildinni. Skagamenn sitja áfram í þriðja sæti með 21 stig og Grindvíkingar í því níunda með 13 stig.

Vondur dagur

Sóknarmenn liðanna áttu ekki góðan dag í dag. Komu sér lítið í boltann og áttu bara eiginlega ekki sjens í sterkan varnarleik.

Dómarinn - 8

Fínasta frammistaða hjá dómaranum í kvöld. Engar stórar ákvarðanir sem klikkuðu og með leikinn undir control.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.