Fotbolti.net
@kristoferjonssKristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi-Max deild kvenna
Þórsvöllur
Þór/KA
Þór/KA
0 - 3
Valur
Valur
0 - 121' Fanndís Friðriksdóttir 0 - 274' Hlín Eiríksdóttir 0 - 382' Hlín Eiríksdóttir
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Valur náði fram hefndum á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var í sjálfu sér mjög jafn og hefði þannig séð getað dottið báum megin. Munurinn er hins vegar sá að Valur skoraði þrjú mörk á meðan að Þór/KA skoraði ekkert.

Bestu leikmenn

1. Hlín Eiríksdóttir

Skorar tvö mörk í dag sem að klára þennan leik fyrir Val. Gott dagsverk hjá Hlín í dag.

2. Fanndís Friðriksdóttir

Það spiluðu flestir á pari í dag en Fanndís var mjög góð í fyrri hálfleik og skorar gott mark og fær því að njóta vafans hér.

Atvikið

Í stöðunni 1-0 missir Þór/KA fyrirliðan sinn Örnu Sif af velli og var það ákveðinn vendipunktur í leiknum. Mark númer tvö kláraði svo leikinn endanlega.

Hvað þýða úrslitin?

Valur heldur toppsæti sínu og er nú ellefu stigum á undan Þór/KA sem að er í þriðja sætinu. Breiðablik á eftir að spila og getur jafnað Val af stigum.

Vondur dagur

Þetta er rosalega flókið mál þar sem að það var engin á vellinum eitthvað yfirburðar léleg. En ætli maður verður ekki að setja sóknarleik Þór/KA hér þar sem að þær náðu ekki að skora í dag. Vantaði smá bit og ákefð í sóknarleikinn í dag.

Dómarinn - 7

Alls ekki erfiður leikur að dæma og flestar ákvarðanir réttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.