SKÝRSLAN: Gary Martin fer brosandi heim þrátt fyrir Stjörnusigur
Hvað réði úrslitum?
Getumunur á liðunum. Stjarnan er bara betra lið og það var mikill getumunur þrátt fyrir aðeins eins marks sigur.
Bestu leikmenn
1. Alex Þór Hauksson
Skorar mark og var flottur á miðjunni hjá heimamönnum.
2. Gary Martin
Skoraði tvö mörk og tók gullskóinn heim.
Atvikið
Vítið og ekki vítið. Stjarnan vildi víti sem ekki var dæmt og ÍBV fékk "soft" víti hinu megin. Hefði getað skipt sköpum í baráttunni um markakóngstitilinn.
Hvað þýða úrslitin?
Ekkert. Nákvæmlega ekkert.
Vondur dagur
Daníel Laxdal. Gleymdi sér á fjærstöng í fyrra markinu og braut af sér í vítinu.
Dómarinn - 7
Var lítið undan honum að kvarta þannig séð. Vissulega stórir dómar ef vítin eru ekki rétt en æ, þetta var rólegur leikur að dæma. Solid sjöa.



