SKÝRSLAN: Skagamenn niðurlægðir á heimavelli.
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru bara töluvert betri í þessum leik. Voru yfir í allri baráttu og vildu þetta bara miklu meira. Virkilega flottur leikur hjá þeim.
Bestu leikmenn
1. Kwame Quee(Víkingur R)
Kwame var frábær í þessum leik. Gerði varnarmönnum ÍA lífið leitt í 90mín og skoraði tvö hugguleg mörk. MOM
2. Kári Árnason(Víkingur R)
Þessi maður. Kemur inní liðið eftir meiðlsi og bossar bara miðjuna eins og kóngur!
Atvikið
Eitt af mjög fáu jákvæðu við leik ÍA í dag, markið hjá Bjarka Stein. Hann labbar framhjá vörn Víkings og hamrar hann uppí vinkilinn. Geggjða mark.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn enda tímabilið í 10.sæit en Víkingur endar í 7.sæti.
Vondur dagur
Aron Kristófer úffff! Kom inná þegar Höddi Löpp meiddist og gat bara nákvæmlega ekki neitt!
Dómarinn - 7
Fínasta frumraun hjá Elíasi í Pepsi-Max deildinni.



