Fotbolti.net
Ester Ósk Árnadóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Pepsi Max-deild karla
Greifavöllurinn
8 stiga hiti, smá gola og skýjað
KA
KA
4 - 2
Fylkir
Fylkir
0 - 11' Ólafur Ingi Skúlason Elfar Árni Aðalsteinsson (víti) 15'1 - 1Elfar Árni Aðalsteinsson 27'2 - 1Andri Fannar Stefánsson 63'3 - 13 - 280' Geoffrey Wynton Mandelano CastillionElfar Árni Aðalsteinsson 92'4 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 780
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Besti árangur KA í efstu deild í 17 ár

Hvað réði úrslitum?

KA var töluvert sterkari aðilinn í leiknum þótt að Fylkir hafi átt sýna spretti. Miðja Fylkis var oft á tíðum í einhverjum skógarhlaupum og oftar en ekki greið leið í gegnum hana sem KA menn notfærðu sér. Svo bara þetta klassíska, KA skoraði fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Elfar Árni Aðalsteinsson

Elfar Árni hefur verið virkilega öflugur fyrir KA, sérstaklega í síðustu leikjum og það var enginn breyting á í dag. Hann skorar þrennu fyrir liðið og er meðal markahæstu manna deildarinnar með 13 mörk eftir sumarið.

2. Nökkvi Þeyr Þórisson

Nökkvi kom inn á þegar tuttugu mínútur voru búnar af leiknum. Sá var góður! Mikill hraði í honum sem varnarmenn Fylkis voru í miklu basli með. Á sömuleiðis eina stoðsendingu í leiknum.

Atvikið

Fjórða mark KA. Fylkir var búið að vera hóta jöfnunarmarki í lokinn. Leikmenn KA og stuðningsmenn ekki búnir að gleyma jöfnunarmarki HK í síðasta heimaleik úr síðustu spyrnu leiksins. Fögnuðurinn var því eftir því þegar Elfar Árni lokaði leiknum í uppbótartíma.

Hvað þýða úrslitin?

KA klárar tímabilið í 5. sæti en það er einn besti árangur KA í efstu deild. Fylkir klárar mótið á svipuðum slóðum og í fyrra eða í 8. sæti.

Vondur dagur

Helgi Valur gerist sekur um dýr mistök í þriðja markinu sem KA skorar. Miðja Fylkis var líka oft á tíðum galopinn og í tómu veseni.

Dómarinn - 9

Mér fannst Helgi standa sig með stökustu prýði. Tók ekkert eftir honum í leiknum og þannig á það einmitt að vera.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.