Fotbolti.net
Kristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Blíðskapaveður. Teppið iðagrænt.
Breiðablik
Breiðablik
1 - 2
KR
KR
0 - 124' Kennie Knak Chopart0 - 226' Kristján Flóki FinnbogasonThomas Mikkelsen (víti) 89'1 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1032

SKÝRSLAN: Gústi réði ekki við KR-inga í kveðjuleiknum

Hvað réði úrslitum?

Staðreyndin að KR eru Íslandsmeistarar og Breiðablik eru í öðru sæti. Blika virkuðu líklegri í upphafi leiks en fundu einhvernveginn engin svör við varnarvegg KR. Þegar að KR skoraði svo tvö mörk með tveggja mínútna millibili var þetta svo gott sem komið.

Bestu leikmenn

1. Kennie Chophart

Kennie er búinn að vera frábær fyrir KR í sumar eftir að hafa verið færður í hægri bakvörðinn. Skorar fyrsta mark KR í dag og var duglegur allan þann tíma sem að hann fékk að spila.

2. Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Annar leikmaður sem að er búinn að vera geggjaður í sumar. Arnór hélt uppteknum hætti í dag og gerði Blikum gríðarlega erfitt fyrir að skapa sér færi.

Atvikið

Mörkin tvö hjá KR. Breiðablik var búið að vera líklegri aðilinn allan leikinn og kom það eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar að Kennie skoraði. Mínútu síðar skoraði svo Kristján Flóki og leikurinn svo gott sem búinn.

Hvað þýða úrslitin?

KR-ingar jafna stigametið og enda mótið með 52 stig. Þá eru þeir einnig búnir að setja nýtt met en ekkert lið hefur unnið deildina með eins miklum mun, eða 14 stig. Blikar enda mótið í öðru sæti með 38 stig.

Vondur dagur

Mér fannst nú enginn eitthvað arfaslakur í dag satt best að segja. Viktor Örn Margeirsson var duglegur að reyna skot af löngum færum en boltinn fór alltaf yfir hjá honum. Hann var samt sem áður ekkert slakur í leiknum og var þó að reyna.

Dómarinn - 5

Gefum Jóhanni fimmu hérna. Leikurinn var nú ekkert svakalega erfiður að dæma og lítið um vafamál. Mér fannst heldur sérstakt þegar að hann dæmdi víti þegar að Beitir og Thomas voru að berjast um boltann og fær hann mínus í kladdann fyrir það. Mögulega er ég samt bara að tala með afturendanum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.