SKÝRSLAN: Kóngurinn í Krikanum kvaddi með Evrópusæti
Hvað réði úrslitum?
Gæðin á lokaþriðjungnum. Grindavík voru inní leiknum í 51 mínútu án þess að búa sér til alvöru færi á meðan að FH refsuðu.
Bestu leikmenn
1. Steven Lennon
Missti af markakóngstitlinum en kláraði erfitt færi fyrir fyrsta markið og fiskaði svo víti og skoraði númer tvö. Gæðaframherji á allan hátt.
2. Davíð Þór Viðarsson
Kannski eilítið sentimental en þá það, Davíð fékk heiðursskiptingu sem "Kóngurinn í Krikanum" og í þessum leik var hann með klassíska frammistöðu. Braut upp sóknarleik gesta, skilaði boltanum vel frá sér og hjálpaði dómaranum að dæma. Alvöru leiðtogi fram á síðustu mínútu.
Atvikið
Rauða spjaldið, McAusland náði ekki að stoppa sendingu í gegn betur en svo að boltinn slapp framhjá þar sem Atli Guðna rauk af stað til að ná honum, McAusland klippti Atla niður og fékk rautt spjald sem þýddi leik lokið í Kaplakrika.
Hvað þýða úrslitin?
FH mun leika í Evrópukeppni á ný sumarið 2020, þungu fargi af þeim létt.
Grindvíkingar voru fallnir fyrir leik en þetta tap þýddi að þeir enda einungis með 20 stig.
Grindvíkingar voru fallnir fyrir leik en þetta tap þýddi að þeir enda einungis með 20 stig.
Vondur dagur
Sóknarleikur Grindvíkinga var enn á ný vandi þeirra. Áttu flottan leik síðast gegn Val en í dag voru þeir á ný í miklu brasi með að komast í færi eftir að hafa náð að komast vel upp völlinn þangað til á lokaþriðjunginn kom.
Í hnotskurn ástæða þess að þeir eru fallnir.
Í hnotskurn ástæða þess að þeir eru fallnir.
Dómarinn - 9,5
Fullkomin frammistaða hjá teyminu. Allar lykilákvarðanir réttar, fengju 10 ef erfiðleikastuðullinn væri hærri. Flottur endir á sumrinu hjá Þorvaldi.



