Fotbolti.net
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Víkingur R.
Víkingur R.
Lengjudeild kvenna
Víkingsvöllur
1 - 3
Tindastóll
Tindastóll
0 - 127' Aldís María JóhannsdóttirRut Kristjánsdóttir 37'1 - 11 - 258' Murielle Tiernan1 - 389' Laufey Harpa Halldórsdóttir
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson

SKÝRSLAN: Stólarnir eru ekkert að grínast

Hvað réði úrslitum?

Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem báðum liðum gekk illa að halda boltanum og byggja upp spil náði Tindastóll betri tökum á leiknum. Öflugur leikkafli hjá þeim skilaði marki og Stólunum leið vel með forystuna. Gátu legið til baka og ógnað með skyndisóknum. Þær gerðu svo út um leikinn með einni slíkri á lokamínútunum. Heilt yfir verðskuldaður sigur.

Bestu leikmenn

1. Aldís María Jóhannsdóttir

Mark og stoðsending frá Aldísi í dag. Hún er búin að koma öflug til leiks þetta tímabilið og það verður gaman að fylgjast með henni í sumar.

2. Laufey Harpa Halldórsdóttir

Toppleikur hjá vinstri bakverðinum. Lét til sín taka bæði varnar- og sóknarlega og kórónaði góðan leik með því að skora þriðja mark Tindastóls.

Atvikið

Draumamark Rutar Kristjáns. Hún tók boltann á lofti og skilaði honum í netið eftir fyrirgjöf Brynhildar Völu. Sannkallað augnakonfekt.

Hvað þýða úrslitin?

Tindastóll er með 7 stig í 2. sæti deildarinnar. Jafnmörg stig og topplið Keflavíkur en lakari markatölu. Stólunum langar upp um deild og liðið hefur sýnt það með sannfærandi frammistöðu í upphafi móts. Víkingar sitja hinsvegar áfram í 7. sæti og halda áfram að leita að fyrsta deildarsigri sumarsins.

Vondur dagur

Það átti enginn leikmaður sérstaklega slæman leik í kvöld. Bæði lið fengu aragrúa auka- og hornspyrna sem ekkert varð úr. Hendum vonda deginum á föstu leikatriðin í heild sinni.

Dómarinn - 8

Mjög fín frammistaða hjá tríóinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.