Fotbolti.net
Sara Kristín Víðisdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Eimskipsvöllurinn
Logn og 18 gráður
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 2
ÍBV
ÍBV
0 - 120' Karlina Miksone0 - 257' Fatma Kara
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Sigurhrina ÍBV heldur áfram

Hvað réði úrslitum?

Færanýting liðanna var það sem réði úrslitum. Þróttur fékk haug af færum en náði ekki að nýta á meðan ÍBV náði að nýta tvö af sínum.

Bestu leikmenn

1. Fatma Kara

Var virkilega góð á miðju ÍBV. Hún stjótnaði spilinu vel og svo skoraði hún líka annað mark ÍBV sem gerði út um leikinn.

2. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving

Átti margar virkilega góðar og mikilvægar vörslur í dag, sérstaklega þær sem hún átti í stöðunni 0-0 og 0-1.

Atvikið

Seinna mark ÍBV gerði út um leikinn. Þróttur var vel inn í leiknum í stöðunni 1-0 en eftir að ÍBV tvöfaldaði forrystuna var eins og slökkt hefði verið á Þrótturum.

Hvað þýða úrslitin?

Með sigrinum komust ÍBV stúlkur upp í 4.sæti með 12 stig og eru þær búnar að vinna þrjá leiki í röð í deildinni. Þróttur er hins vegar komnar niður í 8.sæti með jafn mörg stig og KR sem er í 9.sæti en KR á tvo leiki til góða á Þrótt.

Vondur dagur

Nánast allt lið Þróttar átti ekki góðan dag. Eina undantekningin þar er Agnes í marki Þróttar sem bjargaði þeim nokkrum sinnum. Annars voru of margar sendingar hjá Þrótti sem rötuðu ekki á samherja og of mörg dauðafæri sem þær nýttu ekki.

Dómarinn - 7

Leyfði leiknum að fljóta vel
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.