SKÝRSLAN: Rán um hábjartan dag á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Selfyssingar réðu lögum og lofum nánast frá upphafi til enda. Til að byrja gekk illa að finna opnanir á þéttri vörn Fylkis. Þegar líða tók á leikinn fengu Selfyssingar nokkur mjög góð færi en Cecilía í marki Fylkis sá til þess að Selfyssingar náðu ekki forystunni. Fylkisstúlkur lágu til baka en fengu nokkrar skyndisóknir sem þeim tókst ekki að nýta sér. Það var síðan ekki fyrr en í uppbótartíma sem að markið kom og það var það sem réði úrslitum. Gífurlega svekkjandi fyrir Selfoss en þær þurfa að líta í eigin barm eftir þennan leik og skoða sín mál vel og vandlega.
Bestu leikmenn
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Þvílík frammistaða. Vá. Var 100% í öllum sínum aðgerðum í dag og varði oft á tíðum frábærlega úr dauðafærum Selfyssinga. Á ansi stóran þátt í stigunum þremur.
2. Bryndís Arna Níelsdóttir
Gerir sigurmarkið í leiknum og var lífleg þess utan. Frábær barátta og vinnsla eins og í öllu Fylkisliðinu.
Atvikið
Sigurmark Fylkis í uppbótartíma. Sama uppskrift og í fyrri leik liðanna. Selfyssingar betri en sigurmarkið á lokamínútunum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Selfoss er komið niður í sjötta sæti deildarinnar og nú fjórtán stigum frá toppsætinu. Liðið er hinsvegar þremur stigum frá fallsæti. Fylkir styrkir stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Sóknarlína Selfyssinga vill eflaust gleyma þessum leik sem allra, allra fyrst. Liðið fékk urmul af færum til þess að setja boltann í netið en inn fór hann ekki. Dagný Brynjarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir fóru báðar illa með mjög góð færi.
Dómarinn - 8,5
Ekkert hægt að setja út á frammistöðu dómaranna í dag. Þó ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma en við tökum ekkert af þeim. Gott flæði í þessu.



