Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Kórinn
Logn og rennislétt gervigras í Kórnum í dag.
HK
HK
3 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Martin Rauschenberg Brorsen 47'1 - 0Birnir Snær Ingason 68'2 - 02 - 180' Viktor Andri Hafþórsson Birnir Snær Ingason 85'3 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: HK hafði betur í fallbaráttuslagnum - Fjölnismenn í slæmum málum.

Hvað réði úrslitum?

Einbeitingarleysi Fjölnismanna aftast réði þessu. Leikurinn var nokkuð jafn en Fjölnismenn gera sig seka slæm mistök og HK nýtti sér það og settu 3 á meðan Fjölnismenn skoruðu bara 1

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason (HK)

Besti maður vallarsins, skoraði tvö og var öflugur fremst í síðari hálfleiknum hjá HK

2. Martin Rauschenberg (HK)

Kom sterkur inn í vörn HK-inga í dag og kom HK-ingum yfir með skalla í byrjun síðari hálfleiks.

Atvikið

Þriðja markið sem kláraði leikinn. Arnór Breki með hræðileg mistök og Birnir sleppur í gegn og kláraði framhjá Atla Gunnari

Hvað þýða úrslitin?

HK-ingar koma sér burt frá fallsvæðinu í bili í það minnsta. Fjölnismenn eru komnir í afar erfið mál á botni deildarinnar.

Vondur dagur

Arnór Breki Ásþórsson (Fjölnir) - Gerir sig sekan um hræðileg mistök í þriðja markinu og hleypti Birni Smæ í gegn sem þakkaði fyrir sig og kláraði leikinn.

Dómarinn - 4.5

Helgi Mikael var ekki góður í dag. HK-ingarnir vitlausir út í hann í fyrri hálfleik og síðan snérist það við í þeim síðari og þá voru Fjölnismenn vitlausir út í hann. Átti að senda Ívar Örn í sturtu í seinni hálfleik en hann braut tvisvar á sér eftir að hann fékk fyrra gula og skil ég ekki alveg hvernig hann hékk á vellinum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.