Fotbolti.net
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Lengjudeild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
5 - 2
Fjölnir
Fjölnir
Benedikt Daríus Garðarsson 14'1 - 01 - 138' Hákon Ingi JónssonNikulás Val Gunnarsson (víti) 41'2 - 1Hallur Húni Þorsteinsson 45'3 - 1Ásgeir Eyþórsson 46'4 - 1Ómar Björn Stefánsson 85'5 - 15 - 290' Hákon Ingi Jónsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fylkir tyllir sér á toppinn

Hvað réði úrslitum?

Fylkir voru klassa ofar en Fjölnir í dag strax frá upphafsflauti. Meiri ákefð og vilji í öllum þeirra aðgerðum í dag. Fyllilega verðskuldaður sigur hjá Fylki.

Bestu leikmenn

1. Þórður Gunnar Hafþórsson

Mikill kraftur í Þórði í dag og hann sótti til að mynda vítaspyrnuna sem skóp annað markið. Virkilega góð frammistaða hjá þessum unga leikmanni.

2. Ásgeir Eyþórsson

Mjög traustur varnarlega og skoraði gott mark eftir hornspyrnu.

Atvikið

Annað mark Fylkis í dag. Fjölnismenn voru nýbúnir að jafna leikinn og fá svo dæmda á sig vítaspyrnu og Fylkir kemst strax aftur yfir og bætti svo við öðru stuttu seinna.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir fer upp fyrir Fjölni og tyllir sér í efsta sætið í bili að minnsta kosti. Fjölnir missir af sínum fyrstu stigum í sumar.

Vondur dagur

Varnaleikur Fjölnis var ekki til útflutnings í kvöld og sóknarleikmenn Fylkis fengu trekk í trekk að leika lausum hala og það gerði það að verkum að Fylkir skoraði fimm mörk.

Dómarinn - 6

Fullt af stórum atvikum í kvöld. Fyrra vítið var hárrétt en hitt virkaði virkilega soft. Rauða spjaldið var óumflýjanlegt en Vilhjálmur hefði líklega átt að gefa Fylki víti í fyrri hálfleik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.