Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
11 gráður og skýjað, flott fótboltaveður
Breiðablik
Breiðablik
0 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 113' Júlíana Sveinsdóttir
Dómari: Birgir Þór Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Óvæntur sigur ÍBV gegn Blikum

Hvað réði úrslitum?

ÍBV liðið kom mjög skipulagt til leiks og var það agaður varnaleikur gestanna sem réði úrslitum í dag.

Bestu leikmenn

1. Júlíana Sveinsdóttir

Skorar frábært mark og var mjög góð varnarlega.

2. Guðný Geirsdóttir

Mjög örugg í sínum aðgerðum, steig varla feilspor.

Atvikið

Mark Júlíönu á 13. mínútu. Skot frá miðjum vallarhelming Breiðabliks. Þetta kom Blikum í opna skjöldu og náði ÍBV að verja forystuna vel eftir markið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Breiðablik fer niður í 4. sæti deildarinnar. ÍBV nær að koma sér upp í 7. sætið.

Vondur dagur

Telma Ívarsdóttir gerði mistök þegar ÍBV skoraði og kostaði það leikinn. Langskot frá Júlíönu Sveinsdóttur og boltinn fór yfir Telmu sem átti að gera betur.

Dómarinn - 9

Birgir Þór og aðstoðamenn hans dæmdu mjög vel í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.