SKÝRSLAN: Selfoss ennþá taplausar en ósáttar með eitt stig.
Hvað réði úrslitum?
Selfoss náði ekki að nýta sín færi vel og hefði getað skorað 2-4 mörk en Samantha stóð sig mjög vel og lokaði á öll skot Selfoss.
Bestu leikmenn
1. Samantha Leshank Murphy.
Varði vel það sem kom á hana og dílaði vel við hornspyrnur Selfoss.
2. Miranda Nild.
Stóð sig vel í miðju Selfoss og var lílegust í vörn og sókn og á hrós skilið.
Atvikið
Þegar Susanna grípur nánast boltann inní teig Selfoss og var heppin að fá ekki víti á sig.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss er núna í 2. sæti einu stigi eftir Val. Keflavík er ennþá í 6. sæti með 7. stig jafn mörg og Stjarnan og ÍBV.
Vondur dagur
Selfoss nær ekki að klára færin sín sem kostar þær 3. stig í topp baráttu og fara ósáttar í rúmið en tökum ekkert af Samönthu sem stóð sig með prýði í dag.
Dómarinn - 6/10
Var ekki uppá sitt besta í dag.



