Fotbolti.net
Jón Már Ferro
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
2 - 0
HK
HK
Sigurbergur Áki Jörundsson 72'1 - 0Kjartan Kári Halldórsson 88'2 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Grótta vann vel fyrir sigrinum

Hvað réði úrslitum?

Varnarmenn og markmaður Gróttu náðu að verja það sem verja þurfti í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik þá var Grótta betra liðið á vellinum. HK var flatt sóknarlega í seinni hálfleik og náði engan vegin að skapa sér næg færi að undanskildu einu færi sem Jón Ívan varði vel í marki Gróttu.

Bestu leikmenn

1. Jón Ívan Rivine

Varði vel nokkrum sinnum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Auðvelt að velja hann bestann í dag.

2. Kjartan Kári Halldórsson

Kjartan Kári var ógnandi á vinstri kantinum og skoraði annað af mörkum heimamanna. Ógnaði nokkrum sinnum til viðbótar. Spennandi leikmaður. Spurning hversu langt hann getur náð.

Atvikið

Fyrra mark leiksins kom Gróttu mönnum á bragðið.

Hvað þýða úrslitin?

Þrátt fyrir að lítið sé búið af mótinu þá er þessi sigur Gróttu þýðingarmikill fyrir þá. Gefur þeim aukið sjálfstraust og trú á að vinna stóru liðin í deildinni. Úrslitin sýna það að lið eins og HK þarf að hafa fyrir sigrum í deildinni þrátt fyrir að vera með frábæra leikmenn allstaðar á vellinum.

Vondur dagur

Hassan átti erfitt uppdráttar fyrir framan mark Gróttu. Hefði hæglega getað klárað einhverja af þeim sénsum sem hann fékk í kvöld í og við teig heimamanna.

Dómarinn - 8

Jóhann Ingi dæmdi ágætlega í kvöld. Þetta var frekar þægilegur leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.