Fotbolti.net
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Lengjudeild kvenna
Víkingsvöllur
12 gráður, skýjað og vindkæling.
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 0
Grindavík
Grindavík
Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir 23'1 - 0Hulda Ösp Ágústsdóttir 43'2 - 0Sigdís Eva Bárðardóttir 80'3 - 0
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Víkingskonur með sterkan sigur á Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Víkingskonurnar byrjuðu leikinn af krafti og pressuðu út um allan völl sem leiddi til mistaka á miðsvæði Grindavíkur. Svo skora þær á ,,besta tíma" eins og sagt er, rétt fyrir hálfleik. Grindavík spilaði mikið betur meginþorra seinni hálfleiks en Andrea í marki Víkinga varði og varði.

Bestu leikmenn

1. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir

Hún var gersamlega frábær í dag og hljóp stanslaust upp og niður kantinn og skoraði fyrsta mark leiksins.

2. Hulda Ösp Ágústsdóttir

John þjálfari virtist hafa lagt upp með að keyra á bakverðina og nýta kantmennina. Það gekk heldur betur upp. Hulda sýndi og sannaði að hún er frábær leikmaður og skoraði frábært skallamark.

Atvikið

Að sjá Svanhildi blómstra eftir að hafa byrjað á bekknum í leiknum á undan. Fyrsta markið hennar var flott og svo var hún vinnusöm um allan völl.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta voru virkilega stór úrslit fyrir Víking sem kom sér aftur á beinu brautina eftir grátlegt tap gegn FH. Liðið er því komið upp í 4. sætið með 6 stig en búið að spila þrjá leiki. Hins vegar voru þetta svekkjandi úrslit fyrir Grindavík sem halda 5. sætinu eins og er með 3 stig en búnar að spila þrjá leiki.

Vondur dagur

Miðsvæði Grindavíkur hlýtur þennan titil. Þær virtust ekki vera á sömu blaðsíðunni og gáfu boltann frá sér trekk í trekk.

Dómarinn - 9

Ekkert við dómarann að sakast í þessum leik. Þetta var tiltölulega auðveldur leikur að dæma og leyfði leiknum að fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.