Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild kvenna
Origo völlurinn
Valur
Valur
9 - 1
KR
KR
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 14'1 - 01 - 121' Guðmunda Brynja ÓladóttirElín Metta Jensen 30'2 - 1Ída Marín Hermannsdóttir 32'3 - 1Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 34'4 - 1Ásdís Karen Halldórsdóttir 46'5 - 1Elísa Viðarsdóttir 75'6 - 1Bryndís Arna Níelsdóttir 86'7 - 1Bryndís Arna Níelsdóttir 88'8 - 1Cyera Makenzie Hintzen 90'9 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Valur valtaði yfir KR 9-1

Hvað réði úrslitum?

Hvar á ég að byrja? Gæða munurinn er gríðarlegur og Valur með valinn mann í hverju rúmi. KR byrjaði leikinn svo sem ágætlega en þegar Valur komst á skrið var aldrei spurning um að sigurinn yrði stór.

Bestu leikmenn

1. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Var mjög góð á kantinum og átti hættulegar fyrirgjafir. Ásdís átti gott mark og tvær stoðsendingar.

2. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Get hæglega valið fimm aðra leikmenn í Valsliðinu. Tvö mörk í dag og býr yfir miklum hraða. Elín Metta og Ída Marín geggjaðar líka.

Atvikið

Ómögulegt að velja eitt atriði úr þessum leik! Ef ég ætti að velja eitt væri það markið hjá Ídu Marín, VÁ!

Hvað þýða úrslitin?

Valskonur lyfta sér tímabundið á toppinn, með 12 stig í 5 leikjum. KR hins vegar er enn án stiga og markatalan hjá þeim -22.

Vondur dagur

Allt KR liðið fær þetta skráð á sig. Það er ekki í boði að fá á sig níu mörk í Bestu deildinni. KR átti erfitt með að koma boltanum frá sínu eigin marki og Valur átti því auðveldan aðgang að markinu.

Dómarinn - 9

Dæmdi leikinn vel og yfir engu að kvarta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.