Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Vogaídýfuvöllur
Rok og sól, 12 gráður úti.
Þróttur V.
Þróttur V.
1 - 1
Selfoss
Selfoss
Hans Kamta Mpongo 5'1 - 01 - 178' Gary John Martin92' Reynir Freyr Sveinsson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Bæði lið svekkt með aðeins 1 stig

Hvað réði úrslitum?

Það var mikill karakter hjá Þróttum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þetta virtist allt enda með sigur hjá heimaliðinu, en eftir mörg klúðruð til að komast tvem mörkum yfir, þá refsuðu Selfyssingar og náðu inn jöfnunarmarki.

Bestu leikmenn

1. James William Dale

Var mjög flottur sem varnasinnaður miðjumaður hjá Þrótt. Stjórnaði miðjunni vel og hindraði sókn Selfossar mikið.

2. Helgi Snær Agnarsson

Erfitt að velja hver á skilið næst bestur í leiknum. En ég ætla að gefa það til Helga Snæ, sem var mjög flottur á vinstri miðju fyrir Þrótt. Mikill orka í honum og skapaði mikið.

Atvikið

Markið sem Selfoss skoraði virtist vera brot inn í teig. Gary missir boltann og virðist brjóta á leikmann Þrótt og tekur svo boltann aftur og skorar. Það varð smá hiti eftir markið. Svo voru seinustu mínútur leiksins alveg sturlaðar. Bæði lið nálægt því að skora og Reynir Freyr fær sitt seinna gula spjald í uppbótartíma.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur V. eru enn í neðsta sæti Lengjudeildarinnar með 6 stig. Selfoss fara upp í 6 sæti og fara yfir Vestra útaf markatölu.

Vondur dagur

Þetta var slæmur dagur hjá sóknaleik Selfossar sem náðu ekki alveg að skora á Þrótt, nema þetta jöfnunarmark. Í hinu liðinu var Hans Mpongo lélegur að taka á móti sendingar. Í staðinn fyrir að mæta á boltann, þá beið hann eftir boltanum og þá var oftast leikmaður Selfoss mættur fyrir framan Hans til að stela boltanum.

Dómarinn - 5

Fínn leikur hjá Agli og teyminu hanns. Spurningarmerki sett á mark Selfyssinga og með seinna gula spjaldið sem Reynir fékk, hann átti samt að mínu mati að fá rautt í fyrsta gula spjaldinu. Svo er gefið Arnór Gauta gult spjald fyrir ekkert.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.