SKÝRSLAN: Stjarnan stal sigrinum á síðustu stundu
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan var sterkari aðilinn heilt yfir í leiknum en KR-ingarnir áttu góðar sóknir og færi sem hefðu vel getað skilað þeim sigri, þær vörðust og börðust vel allan leikinn. Stjörnukonur reyndu hvað þær gátu að koma boltanum í netið og að lokum eftir mikla þolinmæði náði reynsluboltinn Málfríður Erna að pota boltanum í netið eftir hornspyrnu og tryggja Garðbæingum stiginn þrjú.
Bestu leikmenn
1. Marcella Marie Barberic
Þrátt fyrir tap á Marcella virkilega góðan leik og ég held að hún hafi verið lykilmaður í nánast öllum sóknum KR í kvöld. Hún lagði upp mark KR og var bara virkilega góð.
2. Málfríður Erna
Skoraði bæði mörk Stjörnunnar eftir hornspyrnu og tryggði liðinu stiginn þrjú. Miðvörðurinn skorar kannski ekki á hverjum degi en steig upp og kláraði leikinn þegar sóknarmenn Stjörnunnar voru ekki á sínum Besta degi.
Cornelia Baldi Sundelius markvörður KR átti einnig virkilega góðan leik í markinu í dag og varði oft vel.
Cornelia Baldi Sundelius markvörður KR átti einnig virkilega góðan leik í markinu í dag og varði oft vel.
Atvikið
Málfríður Erna skorar sigurmark leiksins í lok uppbótatímans og tryggir Stjörnunni sigurinn. Virkilega sætt fyrir Stjörnuna en líka svakalega sárt fyrir KR sem var svo nálægt því að vinna inn sterkt stig í botnbaráttunni á heimavelli.
Hvað þýða úrslitin?
Staða liðanna breytist lítið Stjarnan er enn í þriðja sætinu, 6 stigum frá toppnum.
Staðan á botninum er einnig óbreytt þar sem þrjú neðstu liðin töpuðu öll sínum leikjum í kvöld. KR er því enn í 9. sæti deildarinnar, sem er fallsæti, með 7 stig, einu stigi meira en Afturelding sem er á botninum.
Staðan á botninum er einnig óbreytt þar sem þrjú neðstu liðin töpuðu öll sínum leikjum í kvöld. KR er því enn í 9. sæti deildarinnar, sem er fallsæti, með 7 stig, einu stigi meira en Afturelding sem er á botninum.
Vondur dagur
Eingin einn leikmaður sem átti sérstaklega vondan dag, þær voru margar í Stjörnuliðinu sem hafa spilað betur en svo eftir góðan leik KR og mikla baráttu þá er það hrikalega vont að fara á koddann í kvöld án stiga.
Dómarinn - 7
Fínasti leikur og ekki mikið til að setja út á var stundum að hægja smá leiknum þegar það þurfti kannski ekkert endilega.



