Hann þrumar honum í slánna og niður í bakið á Bartosz og inn, gæti verið skráð sem sjálfsmark á Bartosz.
90. mín
Annað Víti!
Fred er bara klipptur inn í teig og verðskuldað annað víti!
87. mín
InnHörður Kárason
ÚtRagnar Páll Sigurðsson
87. mín
InnAndrija Aron Stojadinovic
ÚtSigurður Karl Gunnarsson
86. mín
Hér klárar Fram leikinn!
Magnús Þórðarson
Sóknarleikur Fram í seinni hefur alls ekki verið góður og má segja þetta mark hafi komið úr engu. Frammarar búnir að hanga á boltanum í smá tíma og hann endar hjá Magnúsi sem neglir honum inn fyrir utan teig.
81. mín
Hvað er í gangi!!!
Magnús Ingi réttstæður og hefur Aron Snæ hliðin á sér aleinir í öllum alheiminum og ætlar síðan að renna honum á Aron en Bartosz lesur þetta eins og í bók, hvað er í gangi!
80. mín
Gult spjald
Nemanja Lekanic
77. mín
Gult spjald
Richard Már Guðbrandsson
77. mín
Vááááá
Aron Snær Ingason
Bartosz étur Aron Snæ og boltinn dettur út í teiginn á Magnús Inga sem Bartosz étur bara líka! 2 sturlaðar vörslur takk fyrir takk!!
76. mín
Víti fyrir Fram!
Veit ekki alveg hvað Richard Már var að gera hann hoppar bara á Anton inn í teig og réttlega dæmt víti!
74. mín
Magnús Ingi kemur með boltann fyrir í varnarmann FC Árbæ og til Egils Otta sem situr hann rétt yfir skeitina!
70. mín
Frammarar eru einum fleiri en eru ekkert að liggja í færunum þessa stundina.
65. mín
InnRóbert Daði Sigurþórsson
ÚtBjarki Sigfússon
63. mín
InnAnton Ari Bjarkason
ÚtTryggvi Snær Geirsson
fimmta og seinasta skipting Frammara
61. mín
Rautt spjald
Ástþór Ingi Runólfsson
Tilgangslaust braut og uppskerir seinna gula á vallarhelming Frammara og er sendur í sturtu.
59. mín
InnTiago Manuel Da Silva Fernandes
ÚtFreyr Sigurðsson
59. mín
InnFrederico Bello Saraiva
ÚtBreki Baldursson
57. mín
Frammrar eru að undirbúa aðra tvöfalda skiptingu, Tiago og Fred eru að koma inná ekki leiðinlegt að hafa þessa á bekknum.
56. mín
Adam heldur áfram með þessar fyrirgjafir og enda þær alltaf allar á kollinum á Aroni sem situr hann reyndar núna á markið en frábærlega vel varið hjá Bartosz.
52. mín
Frammrar eiga aukspyrnu á hægra horninu á teignum sem Adam tekur beint á kollinn á Aroni sem skallar hann útaf.
51. mín
Gult spjald
Ragnar Páll Sigurðsson
49. mín
InnRichard Már Guðbrandsson
ÚtEyþór Ólafsson
49. mín
InnAndi Andri Morina
ÚtGunnþór Leó Gíslason
48. mín
Váááá
Kennie á skot frá miðju í slánna og yfir, hefði orðið svakalegt!
47. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtViktor Bjarki Daðason
47. mín
InnEgill Otti Vilhjálmsson
ÚtOrri Sigurjónsson
Óskum Orra góðs bata, vonandi var þetta ekki alvarlegt.
46. mín
Leikurinn er hafinn
Frammarar undirbúa tvöfalda breytingu.
45. mín
Hálfleikur
Svakalegt atvik sem gerist hér í lok fyrri hálfleiks en annars nokkuð rólegur leikur, Frammarar ættu kannski að hafa verið búnir að skora fleiri en 1 en vonandi fáum við fleiri í seinni!
Var að frétta að Orri Sigurjónsson rotaðist og mun líklegast ekki halda leik áfram.
45. mín
Hálfleikur
Frammarar leiða
Svakalegt atvik sem gerist hér í lok fyrri hálfleiks en annars nokkuð rólegur leikur, Frammarar ættu kannski að hafa verið búnir að skora fleiri en 1 en vonandi fáum við fleiri í seinni!
45. mín
Vá Orri og Kennie lenda í svakalegum árekstri og Gunnar flautar hálfleikinn af, þeir steinliggja báðir eftir sár þjáðir. Kennie er staðinn upp en Orri liggur en vonandi var þetta ekki alvarlegt.
45. mín
Gult spjald
Eyþór Ólafsson
45. mín
Belanyi neglir í vegginn.
44. mín
Gult spjald
Orri Sigurjónsson
Rétt fyrir utan teig, Stórhættulegt tækifæri fyrir FC Árbæ!
40. mín
Lekanic á geðveika fyrirgjöf á hausinn á Bjarka sem situr hann einhvern veginn framhjá Stefán í markinu las þetta hræðilega og var stál heppinn að Árbær jafnaði bara ekki þarna.
37. mín
Aron Snær með fyrirgjöf ætluð Viktori sem nær ekki til boltans og árbær hreinsa til Tryggva sem neglir honum yfir.
34. mín
Ástþór liggur eftir samstuð við Adam Örn, sýnist allt í lagi með hann.
30. mín
Freyr og Adam eru að tengja svakalega vel hérna í fyrri hálfleik, sama uppskrift og áðan beint inn fyrir á Adam sem núna hamrar honum í varnarmann og vinnur horn.
FC Árbær ná að hreinsa.
29. mín
Fyrsta færi FC Árbæinga í leiknum það átti hann Eyþór en beint á Stefán í marki Frammara.
27. mín
Gult spjald
Ástþór Ingi Runólfsson
25. mín
Hvernig var þetta ekki mark?!
Langur bolti inn fyrir á Aron Snæ sem er aleinn í heiminum en Bartosz étur hann!
22. mín
Freyr með geðveika sendingu inn fyrir vörn FC Árbæjar sem endar hjá Adami sem hamrar honum yfir.
19. mín
Adam tekur hana sjálfur, frábær bolti og það er bara hreint ótrúlegt að enginn hafi náð til hans.
18. mín
Frammarar eru mikið að vinna upp hægri kantinn, Adam Örn á fyrirgjöf í varnarmann og vinnur aðra hornspyrnu.
15. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins eiga Frammarar.
Fc Árbær ná að hreinsa.
13. mín
Fyrsta mark leiksins komið í hús!
Aron Snær Ingason (stoðsending: Freyr Sigurðsson)
Frammarar hafa verið í smá brasi með að brjóta upp Árbæingana en þetta var frábærlega vel gert, Endar hjá Freysa sem á geðveika sendingu beint á kollinn á Aroni búmm! 1-0
10. mín
Fyrsta skot leiksins komið og það átti hann Breki Baldurs eftir frábært spil sem endar hjá Frey sem setti hann út á Breka sem neglir í varnarmann FC Árbæ.
8. mín
Fyrsta almennilega spil Frammara að koma á 8.mín sem endar með fyrirgjöf sem fer aftur fyrir.
5. mín
Hefur svakalega lítið gerst hérna fyrstu 5 mín.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er hafið!
Gunnar Oddur flautar þessu veislu af stað! FC Árbær byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn, vonandi fáum við markaveislu hér á Avis-vellinum!
Fyrir leik
2008 módel að byrja hjá Fram
Viktor Bjarki Daðason er að byrja hjá frömmurum hann er fæddur 2008, sóknarmaður sem fer til FCK 1.júlí, fékk mín hér og þar í lok tímabils í bestu í fyrra og fékk nokkra leiki á undirbúnings verður svakalega gaman að fylgjast með honum á næstunni!
FC Árbær gerir 3 breytingar frá 2-1 sigrinum á Árborg í síðustu umferð í bikarnum þar sem Sigurður Karl, Gunnþór Leó og Bjarki koma inn í liðið.
Fram gerir 9 breytingar á liði sínu eftir sigurinn gegn KR í deild þeirra bestu, Haraldur Einar sem var keyptur í gær fer beint í liðið. Fram stillir líklega svona upp: Stefán Þór Adam Örn - Kennie - Orri - Þengill - Haraldur Breki - Freyr - Tryggvi Snær Viktor Bjarki - Aron Snær
Fyrir leik
!!!
Leikdagur á AVIS-vellinum í Laugardalnum í Mjólkurbikarleik gegn Árbæ. Að venju hvetjum við öll til þess að mæta í bláu og syngja hástöfum. Áfram Fram!
Frammarar sóttu vinstri bakvörðinn Harald Einar frá FH sem er gamall Frammari þar sem hann var í þessu ,,invincible" Fram liði í Lengjudeildinni 2021 þar sem hann átti frábært tímabil og fór til FH með smá umdeildum hætti en er mættur aftur!
Komnir: Alex Freyr Elísson frá Breiðabliki (var á láni hjá KA) Kyle McLagan frá Víkingir R. Kennie Chopart frá KR Þorri Stefán Þorbjörnsson á láni frá Lyngby Freyr Sigurðsson frá Sindra Stefán Þór Hannesson frá Ægi (var á láni)
Farnir: Aron Jóhannsson í Aftureldingu Delphin Tshiembe til Danmerkur Ion Perello til Grindavíkur Þórir Guðjónsson til Þróttar R. Viktor Bjarki Daðason til FCK (1. júlí)
????BREAKING NEWS Á GLUGGADEGI ???? Haraldur Einar Ásgrímsson er kominn aftur heim eftir dvöl í Hafnafirðinum!! ?????????????????????? Halli ætti að vera öllum stuðningsmönnum Fram vel kunnugur. #velkominnheimpic.twitter.com/A7q40ySuXL
Veit ekki hversu oft maður er búinn að heyra þetta síðustu daga og það hefur fullan rétt þar sem Frammarar hafa farið frábærlega vel af stað í deild þeirra bestu með risastórum sigri gegn KR í síðustu umferð 1-0 á Þróttaravellinum þar sem verður leikið í dag.
Varnarleikur Frammara var stórt spurningarmerki á síðustu leiktíð en hafa byrjað þetta tímabil svakalega vel, þetta 5-3-2 kerfi hefur virkað eins og í sögu og hefur jafnvel vekið smá athygli erlendis.
Framarar eru Bestu Deildar félag þannig þetta er þeirra fyrsta umferð í bikarnum en FC Árbær hafa spilað 2 leiki þar sem þeir eru í þriðju deild.
Leið FC Árbæjar í 32- liða úrslit hefur verið skrautleg þar sem þeir byrja með að vinna Smára í vító eftir að leikurinn hafi endað 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Drógust síðan gegn Árborg í næsta leik þar sem þeir unnu 2-1 og það leiddi þá að þessum leik!
Mynd: Árbær
Fyrir leik
Góðan daginn
Verið hjartanlega velkominn á þessa þráðbeinu textalýsingu frá Avis vellinum (völlur Þróttur Reykjavíkur), þar sem FC Árbær og Fram Reykjavík takast á í 32- liða úrslitum Mjólkurbikarsins.