Fotbolti.net
Sævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
Lengjudeild karla
ÍR-völlur
ÍR
ÍR
1 - 1
Þór
Þór
0 - 18' Fannar Daði Malmquist Gíslason Guðjón Máni Magnússon 57'1 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Liðin skilja jöfn að hér í dag.

Viðtöl og skýrsla seinna í kvöld.
92. mín
+3 í uppbótartíma
91. mín
Óliver tekur aftur spyrnuna en boltinn er of langur og fer út fyrir endalínuna.
91. mín
Óliver tekur spyrnuna en boltinn endar í annarri hornspyrnu.
90. mín
ÍR fær hornspyrnu
Þór
90. mín
InnBjarki Þór Viðarsson
ÚtKristófer Kristjánsson
ÍR
87. mín
InnSæmundur Sven A Schepsky
ÚtBragi Karl Bjarkason
ÍR
87. mín
Gult spjald

Kristján Atli Marteinsson

84. mín
Aron á tæpasta vaði
Aron hleypur út til að handsama lausan bolta en rennur út úr teignum þegar hann rennir sér til að grípa boltann. Sýndist hann sleppa taki á boltanum á hárréttum tíma þegar hann var að renna út úr teignum.
83. mín
ÍR nálægt því að taka forystu
Bergvin fær boltann inni í teignum og lætur vaða en Aron ver vel. Alexander fylgir síðan eftir en skýtur í stöngina.
81. mín
Boltinn berst til Arons af vinstri kantinum inn í teiginn þar sem hann reynir skot en Elmar nær að blokka það í hornspyrnu. Það kemur síðan ekkert úr hornspyrnunni.
ÍR
80. mín
InnAlexander Kostic
ÚtEmil Nói Sigurhjartarson
78. mín
Smá darraðadans í teig Þórs þar sem ÍR er í ágætis séns að skora en varnarmenn Þórs ná að blokka skotin og á endanum er Bergvin rangstæður.
76. mín
Boltinn berst til Emils í teignum hjá Þór eftir sendingu frá Aroni. Emil nær skoti á markið en Aron er vel á verði og ver boltann.
75. mín
Rafael Victor á skot á markið innan úr vítateignum en boltinn fer beint á Vilhelm.
72. mín
ÍR fær aukaspyrnu rétt fyrir framan miðjuna og Emil ætlar að gefa hann fyrir markið en sendingin er léleg og endar í markspyrnu.
71. mín
ÍR fær hornspyrnu
Óliver tekur spyrnuna en boltinn fer út fyrir endalínuna.
Þór
69. mín
InnMarc Rochester Sörensen
ÚtAlexander Már Þorláksson
ÍR
69. mín
InnBergvin Fannar Helgason
ÚtGuðjón Máni Magnússon
Markaskorarinn tekinn af velli
68. mín
Óliver tekur spyrnuna en hann fer í Kristófer og ÍR fær aðra hornspyrnu. Sá bolti endar með því að Guðjón reynir bakfallsspyrnu en hann hittir ekki boltann.
67. mín
ÍR fær hornspyrnu
Þór
63. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
ÍR
61. mín
Gult spjald

Róbert Elís Hlynsson

Tekur boltann með sér eftir að það var dæmd aukaspyrna á hann.
Þór
57. mín
Gult spjald

Birgir Ómar Hlynsson

Braut á Arnóri Gauta rétt fyrir markið. Arnar beitti hagnaði sem var góð ákvörðun.
ÍR
57. mín
Allt jafnt í Breiðholtinu

Guðjón Máni Magnússon (stoðsending: Bragi Karl Bjarkason)

Bragi á fyrirgjöf af vinstri kantinum inn á teiginn beint í hlaupaleiðina hans Guðjóns sem skorar örugglega.
53. mín
Árni Elvar reynir skot af svona 35 metrum sem fer hátt yfir markið.
50. mín
ÍR í góðu færi
Óliver á hérna sendingu inn í teiginn af vinstri kantinum á fjærstöngina þar sem Bragi rennir sér í boltann til að ná skotinu en skotið fer rétt framhjá marki.
Þór
46. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Markaskorarinn tekinn af velli
ÍR
46. mín
InnMarteinn Theodórsson
ÚtRenato Punyed Dubon
Tvöföld skipting hjá Árna
ÍR
46. mín
InnAron Daníel Arnalds
ÚtHrafn Hallgrímsson
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
ÍR byrjar með boltann og sækir í átt að
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við í uppbótartíma. Þórsarar voru fljótir að komast yfir en annars hefur bara verið eitt alvöru færi í þessum leik og það var þegar Guðjón Máni skallaði framhjá marki af stuttu færi.
ÍR
41. mín
Gult spjald

Hrafn Hallgrímsson

Fyrir brot á vallarhelmingu Þór
40. mín
ÍR fær aukaspyrnu hægra megin á vellinum í fyrirgjafarstöðu. Óliver tekur spyrnuna en ÍR nær ekki skoti á markið.
ÍR
39. mín
Gult spjald

Guðjón Máni Magnússon

Smá kýtingur milli Guðjóns og Ragnars eftir að Guðjón brýtur á Ragnari.
38. mín
Það hafa verið nokkur hálffæri síðustu mínúturnar hjá báðum liðum en vantar upp á þessa síðustu sendingu.
29. mín
Guðjón Máni í dauðafæri
Óliver á hérna fyrirgjöf af vinstri kantinum sem ratar beint á Guðjón Mána sem er ódekkaður við markteiginn en skallar framhjá markinu. Hérna var auðveldara að hitta á markið.
26. mín
Árni er í hægra hálfsvæðinu og sendir boltann þvert yfir teiginn beint á höfuðið hans Rafael Victor sem skallar boltann rétt framhjá marki.
19. mín
Þór fær horn
Boltinn berst til Birkis rétt fyrir utan teig sem lætur vaða í markið en boltinn kemur varnarmann ÍR og Þór fær hornspyrnu. Ekkert kom síðan upp úr hornspyrnunni.
18. mín
Rafael Victor með fínan sprett hérna í hægra hálfsvæðinu en Marc hreinsar í innkast.
16. mín
Hornspyrnan rataði inn í teig og boltinn fór í fjærstöngina, sá ekki hver átti síðustu snertinguna fyrir það. Rafael Victor lúrði hins vegar á fjærstönginni og var nálægt því að komast í þennan bolta.
14. mín
Þór fær horn
Sigfús á hérna fyrirgjöf af hægri kantinum sem Marc Mcausland hreinsar í hornspyrnu.
13. mín
Eftir smá darraðadans í teignum með tilheyrandi skotum, sendingum og tæklingum nær Marc Mcausland skoti sem fer yfir markið.
12. mín
ÍR fær hornspyrnu
Arnór Gauti á langa sendingu inn fyrir vörn Þórs á Braga Karl sem gefur boltann fyrir en enginn er í teignum. Stuttu seinna komast þeir síðan í færi ÍRingar en Aron ver í horn.
11. mín
Óliver reynir að gefa boltann fyrir af vinstri kantinum en boltinn fer hátt yfir markið.
Þór
8. mín
Þór tekur forystu með laglegu marki

Fannar Daði Malmquist Gíslason

Fær boltann í vinstra hálfsvæðinu rétt fyrir framan teiginn og lætur vaða í fjærhornið og boltinn syngur í netinu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

5. mín
Kristófer keyrir inn í teig ÍR úr hægra hálfsvæðinu og sendir boltann fyrir markið en Vilhelm handsamar boltann.
2. mín
Fyrsta skotið komið
Emil Nói fær hérna boltann fyrir utan teig Þórs og lætur vaða með ristinni en skotið er lélegt og fer framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Þór byrjar með boltann og það er Árni Elvar sem sparkar okkur af stað.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn
ÍR í hvítu og bláu og Þór í svörtu og rauðu.
Fyrir leik
Streymi
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Árni Freyr Guðnason gerir þrjár breytingar á liði ÍR. Marc Mcausland, Renato Punyed, Emil Nói Sigurhjartarson og koma inn í byrjunarliðið í stað Jordian G S Farahani, Alexander Kostic og Sæþórs Ívans Viðarssonar.

Sigurður Heiðar Höskuldsson gerir engar breytingar á liði gestanna frá síðasta leik.
Fyrir leik
Vitringarnir tveir spá báðir jafntefli
Skagamennirnir Árni Marinó Einarsson og Jón Gísli Eyland Gíslason eru spámenn umferðarinnar en þeir hafa báðir verið að leika vel með ÍA í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa hjálpað liðinu að komast upp í fyrra.

Árni Marinó Einarsson
ÍR 2 - 2 Þór
Þór nær í sterkt stig geng erfiðum ÍR-ingum, 2 rauð spjöld í þessum leik og sonur veðurfræðingsins, hann Marteinn Theodórsson, skorar 2 í þessum leik fyrir ÍR.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Jón Gísli Eyland Gíslason
ÍR 1 - 1 Þór
Þessi leikur fer 1-1 þar sem bæði liðin skora úr vítaspyrnu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið í dag
Arnar Ingi Ingvarsson er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts á hliðarlínunum eru þeir Hreinn Magnússon og Magnús Garðarsson. Eftirlitsmaður er Jóhann Gunnar Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staða liðanna í deildinni
1. Njarðvík 20 stig
2. Fjölnir 20 stig
3. Grindavík 13 stig
4. ÍBV 13 stig
5. ÍR 12 stig
6. Keflavík 11 stig
7. Afturelding 7 stig
8. Grótta 10 stig
9. Þór 9 stig
10. Leiknir 9 stig
11. Dalvík/Reynir 7 stig
12. Þróttur 6 stig
Fyrir leik
Velkomin!
Komið sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá 10. umferð í Lengjudeild karla þar sem ÍR tekur á móti Þór í Breiðholtinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.