SKÝRSLAN: Dökkt yfir Gróttu er Máni skein skært
Hvað réði úrslitum?
Eftir að hafa verið á hælunum í fyrri hálfleik og sloppið með það tóku Fjölnismenn völdin í þeim síðari. Þar fóru fremstir í flokki Máni Austmann Hilmarsson og Axel Freyr Harðarson sem voru allt í öllu í sóknarleik Fjölnis sem tryggði sér sanngjarnan 5-2 sigur. Það ásamt jákvæðu hugarfari liðsins sem mætti af miklum krafti út í síðari hálfleikinn eftir að hafa verið undir í baráttunni í þeim fyrri réði mestu um úrslit leiksins.
Bestu leikmenn
1. Máni Austmann Hilmarsson
Þrenna á átta mínútum þykir nokkuð gott í flestum leikjum. Máni steig upp eins og fleiri í liði sínu og gerði gríðarlega vel. Snyrtilegar afgreiðslur í tveimur mörkum og fínt víti.
2. Axel Freyr Harðarson
Skráum þrjár stoðsendingar á hann, Eina fyrirgjöf sem Máni skilar í netið, vítið sem hann sækir og tryggir Mána þrennuna og skotið sem Sigurvin stýrir í netið. Gerði vel og þá sérstaklega í síðari hálfleik með kraftmiklum hlaupum og átti heilt yfir finasta leik.
Atvikið
Þessi átta mínútna kafli Mána telst atvik leiksins sem heild. Lið Fjölnis keyrði þar Gróttu alveg í kaf og litu aldrei til baka eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnisliðið tyllir sér á toppinn og verður þar með 23 stig og þriggja stiga forskot á Njarðvík sem tapaði í kvöld, Grótta enn á niðurleið og fellur niður í tíunda sætið með tíu stig.
Vondur dagur
Chris Brazell var nokkuð ánægður með frammistöðu liðs síns í dag í viðtali hjá okkur á Fótbolta.net. Úti á vellinum get ég vel verið sammála en varnarlína Gróttu hefur átt betri daga fimm mörk fengin á sig segja manni það nokkuð skýrt. Væri ég þjálfari væri ég ósáttur til að mynda með Rafal í markinu er Máni gerir fyrsta mark sitt þegar hann skýtur milli fóta markvarðarins úr þröngu færi. Gott skot en mér finnst Rafal eiga að geta betur. Þá var Máni skuggalega einn í teignum er hann bætti við öðru marki sínu og varnarmenn hvergi nálægt eftir að hafa sogast að nærstönginni eftir fyrirgjöf frá vinstri.
Dómarinn - 7
Góð frammistaða hjá Gunnari og hans teymi frá mér séð. Auðvitað eitt og eitt atvik sem telja má til en heilt yfir fínn leikur. Vítaspyrnudóminn tel ég líka réttann.


