Leik lokið!
93. mín
InnValgeir Árni Svansson
ÚtSævar Atli Hugason
Fer sennilega meiddur af velli eftir vistarskiptin við Erlend.
92. mín
Hausinn farinn hjá heimamönnum!
Þetta er leðinlegt að sjá.
Þetta er leðinlegt að sjá.
92. mín
Rautt spjald
Erlendur Guðnason
Líklega rétt niðurstaða. Svekkjandi fyrir unga leikmanninn.92. mín
Rautt spjald
Joao Ananias Jordao Junior
Hrindir hér einhverjum í Aftureldingu og fær þar að leiðandi réttilega rautt.91. mín
Allt að sjóða uppúr!!
Erlendur með groddaralegt brot og og það fara allir í alla og það liggja þrír!
90. mín
Freysteinn Ingi með tilraun sem Arnar Daði ver.
88. mín
InnSigurpáll Melberg Pálsson
ÚtOliver Bjerrum Jensen
88. mín
InnAndri Freyr Jónasson
ÚtHrannar Snær Magnússon
87. mín
MAAAARK!
Sævar Atli Hugason
Fær boltann vinstra megin á vellinum og lætur vaða fyrir utan teig og hann lekur framhjá Aroni Snær í marki Njarðvíkur og alveg út við stöng.86. mín
InnErlendur Guðnason
ÚtIbrahima Kalil Camara Diakite
86. mín
InnBjörn Aron Björnsson
ÚtHreggviður Hermannsson
86. mín
InnSvavar Örn Þórðarson
ÚtKaj Leo Í Bartalstovu
82. mín
Afturelding skora beint úr aukaspyrnu!
Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar Cogic með flotta aukaspyrnu í gegnum varnarvegg Njarðvíkur sem sigrar Aron Snær í marki Njarðvíkinga.81. mín
Gult spjald
Hreggviður Hermannsson
Brotlegur rétt fyrir utan vítateig.80. mín
InnPatrekur Orri Guðjónsson
ÚtAron Jóhannsson
80. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtBjarni Páll Linnet Runólfsson
79. mín
Dominik Radic í flottu skotfæri en skotið framhjá.
77. mín
Afturelding að komast aftur yfir!
Aron Jóhannsson (stoðsending: Hrannar Snær Magnússon)
Hrannar Snær fer full auðveldlega framhjá Arnari Helga og leggur boltann út í teig þar sem Aron setur hann fast innanfótar mitt á markið í slánna og inn!77. mín
Aron Jóhannsson með aukaspyrnuna hátt yfir markið.
76. mín
Afturelding að fá aukaspyrnu á flottum stað rétt fyrir utan teig.
70. mín
NJARÐVÍKINGAR JAFNA!
Oumar Diouck (stoðsending: Kaj Leo Í Bartalstovu)
Kaj Leo með stórkostlega sendingu upp í vindinn á Oumar Diouck inn á teig sem nær að koma honum á vinstri fótinn og leggur hann framhjá Arnari Daða í marki Aftureldingar!70. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtAmin Cosic
69. mín
Njarðvíkingar fá aukaspyrnu við vítateigshornið.
Oumar Diouck tekur aukaspyrnuna og hún fer yfir markið.
Oumar Diouck tekur aukaspyrnuna og hún fer yfir markið.
68. mín
Bæði lið í brasi með að ná að klára sínar sóknir. Vantar alltaf síðustu sendinguna eða láta bara vaða.
66. mín
Amin Cosic með hörkuskot rétt yfir markið!
64. mín
DAAUÐAFÆRI!!
Njarðvíkignar með horn sem dettur niður í teig og út aftur og Njarðvíkingar koma boltanum fyrir markið á Amin Cosic sem lyftir boltanum yfir markið!
63. mín
Afturelding í flottri stöðu og Elmar Cogic með tilraun sem Aron Snær tekur.
57. mín
Gult spjald
Amin Cosic
Uppsafnað og fær bendingar um hvar hann er búin að vera brjóta í leiknum.55. mín
Leikurinn endana á milli hérna. Vantar örlítið upp á gæðin til að loka sókinni hjá báðum liðum.
52. mín
Gult spjald
Bjarni Páll Linnet Runólfsson
Sparkar boltanum burt eftir að búið var að dæma brot.51. mín
Gult spjald
Tómas Bjarki Jónsson
Tekur Hrannar Snær niður og fær réttilega gult.50. mín
Bæði lið öflug að missa boltann hér í upphafi síðari.
48. mín
Amin Cosic með tilraun framhjá markinu.
46. mín
Aron Jóhannsson sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við þetta í fyrri hálfleik þrátt fyrir þrjú mörk.
Gestirnir leiða með tveimur mörkum gegn einu í hlé!
Gestirnir leiða með tveimur mörkum gegn einu í hlé!
43. mín
Njarðvíkignar aðeins verið að færa sig ofar og Afturelding að falla aftar.
39. mín
Afturelding með lúmskan bolta fyrir markið sem endar sem markskot og Aron Snær tekur þetta.
35. mín
Oumar Diouck með flottan bolta beint í hættusvæðið þar sem hann endar svo í netinu úr mannþrönginni og Tómas Bjarki kemur fagnandi út úr þessu svo ég býst fastlega við því að hann hafi átt síðustu snetringuna og minnkar muninn fyrir heimamenn!
NJARÐVÍKIGNAR MINNKA MUNINN!
Tómas Bjarki Jónsson (stoðsending: Oumar Diouck)
Fimmta hornspyrna Njarðvíkinga í leiknum skilar árangri!Oumar Diouck með flottan bolta beint í hættusvæðið þar sem hann endar svo í netinu úr mannþrönginni og Tómas Bjarki kemur fagnandi út úr þessu svo ég býst fastlega við því að hann hafi átt síðustu snetringuna og minnkar muninn fyrir heimamenn!
32. mín
Bæði lið í vandræðum með að halda í boltann.
29. mín
Gult spjald
Arnar Helgi Magnússon
26. mín
Afturelding eru með vindinn í bakið og heimamenn því á móti vind.
Margir boltar sem Njarðvíkingar hafa reynt að spyrna fram sem hafa nánast fokið tilbaka.
Margir boltar sem Njarðvíkingar hafa reynt að spyrna fram sem hafa nánast fokið tilbaka.
24. mín
Mjög tilviljunarkenndur fótbolti oft eins og vill verða í svona blíðskapa veðri.
19. mín
Vindurinn að leika bæði lið grátt.
16. mín
Afturelding tvöfaldar!
Elmar Kári Enesson Cogic
Aron Snær í boltanum en vítaspyrnan ótrúlega örugg og fer stöngin inn.15. mín
AFTURELDING FÆR VÍTASPYRNU!
Sigurjón Már brotlegur gegn Elmari Cogic.
13. mín
Oumar Diouck með skot yfir markið.
12. mín
Njarðvíkignar aðeins að færast ofar og halda pressu á Aftureldingu.
9. mín
Regnið á rúðunni hérna er ekki að gera mér neina greiða. Sé þetta allt fullt blörrað.
8. mín
Afturelding að spila virkilega vel og fara full auðveldlega í gegnum vörn Njarðvíkur en Aron Snær bjargar þessu.
5. mín
Elmar Cogic með flotta aukaspyrnu sem Aron Snær ver virkilega vel.
4. mín
Gult spjald
Ibrahima Kalil Camara Diakite
4. mín
Gestirnir taka forystu!
Hrannar Snær Magnússon
Hrannar Snær er það sem skorar! Fékk boltann á vinstri vængnum og köttaði inn og átti flott skot sem sigraði Aron Snær í marki Njarðvíkinga.2. mín
FÆRI!
Oumar Diouck stingur sér í gegn og er við það að pota boltanum í netið en Afturelding rétt ná að bjarga þessu!
1. mín
Það eru heimamenn sem sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Hjá gestunum kemur Bjarni Páll Linnet Runólfsson inn í lið Aftureldingar frá síðasta leik og Andri Freyr Jónasson fer á bekkinn.
Hjá heimamönnum endurheimta þeir Kaj Leo Í Bartalstovu og Dominik Radic tilbaka úr banni frá síðasta leik og koma þeir beint inn í byrjunarliðið. Freysteinn Ingi Guðnason og Björn Aron Björnsson fara á bekkinn.
Hjá heimamönnum endurheimta þeir Kaj Leo Í Bartalstovu og Dominik Radic tilbaka úr banni frá síðasta leik og koma þeir beint inn í byrjunarliðið. Freysteinn Ingi Guðnason og Björn Aron Björnsson fara á bekkinn.
Fyrir leik
Spámenn umferðarinnar
Skagamennirnir Árni Marinó Einarsson og Jón Gísli Eyland Gíslason eru spámenn umferðarinnar en þeir hafa báðir verið að leika vel með ÍA í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa hjálpað liðinu að komast upp í fyrra.

Njarðvik 1 - 0 Afturelding
Þetta verður rosalegur leikur, mikið af færum og mikill hasar, en Njarðvíkingar ná að klína einu marki rétt fyrir lokin og taka þessi 3 stig.

Njarðvík 0 - 1 Afturelding
Uppeldisfélagið vinnur þennan leik. Elmar skorar sigurmarkið undir lok leiksins eftir annars tíðindalítinn leik.

Njarðvik 1 - 0 Afturelding
Þetta verður rosalegur leikur, mikið af færum og mikill hasar, en Njarðvíkingar ná að klína einu marki rétt fyrir lokin og taka þessi 3 stig.

Njarðvík 0 - 1 Afturelding
Uppeldisfélagið vinnur þennan leik. Elmar skorar sigurmarkið undir lok leiksins eftir annars tíðindalítinn leik.
Fyrir leik
Njarðvík
Það hefur verið gríðarleg stemning með Njarðvíkingum í sumar og þeir hafa komið skemmtilega á óvart. Njarðvíkingum var fyrir mót spáð baráttu á hinum enda töflunnar en Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur svo sannarlega smíðað hörku lið í Njarðvík sem eru til alls líklegir í sumar. Njarðvíkingar hafa sótt 10 stig af síðustu 15 mögulegum og gerðu jafntefli gegn nágrönnum sínum í Keflavík í síðustu umferð.
Njarðvíkingar sitja á toppi deildarinnar á markatölu og hafa skorað flest mörk í sumar eða 20 talsins og fengið á sig bara 9 mörk, aðeins Keflavík hafa fengið á sig færri mörk. Það gerir plús 11 í markatölu sem er það mesta í deildinni til þessa.
Mörk Njarðvíkur hafa skorað:
Dominik Radic - 6 mörk
Oumar Diouck - 5 mörk
Kenneth Hogg - 2 mörk
Kaj Leo í Bartalstovu - 2 mörk
Arnar Helgi Magnússon - 2 mörk
*Aðrir minna

Njarðvíkingar sitja á toppi deildarinnar á markatölu og hafa skorað flest mörk í sumar eða 20 talsins og fengið á sig bara 9 mörk, aðeins Keflavík hafa fengið á sig færri mörk. Það gerir plús 11 í markatölu sem er það mesta í deildinni til þessa.
Mörk Njarðvíkur hafa skorað:
Dominik Radic - 6 mörk
Oumar Diouck - 5 mörk
Kenneth Hogg - 2 mörk
Kaj Leo í Bartalstovu - 2 mörk
Arnar Helgi Magnússon - 2 mörk
*Aðrir minna

Fyrir leik
Afturelding
Það hefur ekki verið alveg sama stemningin með Aftureldingu í sumar og við sáum síðasta sumar. Aftureldingu var spáð fyrir mót baráttu í kringum efsta sætið en hafa hingað til ekki náð því flugi sem búist var við og koma inn í þennan leik með tvo tapleiki í röð á bakinu gegn ÍBV og Fjölni.
Afurelding sitja í 7.sæti deildarinanr og hafa skorað 11 mörk og fengið á sig 17 sem gera mínus 6 í markatölu fyrir leikinn í kvöld.
Markahæstu menn Aftureldingar eru:
Georg Bjarnason - 2 mörk
Elmar Kári Enesson Cogic - 2 mörk
Andri Freyr Jónasson - 2 mörk
*aðir minna

Afurelding sitja í 7.sæti deildarinanr og hafa skorað 11 mörk og fengið á sig 17 sem gera mínus 6 í markatölu fyrir leikinn í kvöld.
Markahæstu menn Aftureldingar eru:
Georg Bjarnason - 2 mörk
Elmar Kári Enesson Cogic - 2 mörk
Andri Freyr Jónasson - 2 mörk
*aðir minna

Fyrir leik
Lengjudeildin
Lengjudeildin er að nálgast miðbik og tvö lið eru aðeins búin að skera sig frá restinni en þó ekki það langt að það sé ekki hægt að ná þeim. Annað þeirra liða er heimaliðið hér í kvöld, Njarðvík.
Þegar níu umferðum er lokið lítur þetta svona út:
1.Njarðvík - 20 stig
2.Fjölnir - 20 stig
3.Grindavík - 13 stig (8 spilaðir leikir)
4.ÍBV - 13 stig
5.ÍR - 12 stig
6.Keflavík - 11 stig
7.Afturelding - 11 stig
8.Grótta - 10 stig
9.Þór Ak - 9 stig (8 spilaðir leikir)
10.Leiknir R. - 9 stig
11.Dalvík/Reynir - 7 stig
12.Þróttur R. - 6 stig

Þegar níu umferðum er lokið lítur þetta svona út:
1.Njarðvík - 20 stig
2.Fjölnir - 20 stig
3.Grindavík - 13 stig (8 spilaðir leikir)
4.ÍBV - 13 stig
5.ÍR - 12 stig
6.Keflavík - 11 stig
7.Afturelding - 11 stig
8.Grótta - 10 stig
9.Þór Ak - 9 stig (8 spilaðir leikir)
10.Leiknir R. - 9 stig
11.Dalvík/Reynir - 7 stig
12.Þróttur R. - 6 stig

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Ronnarong Wongmahadthai.
Ólafur Ingi Guðmundsson hefur þá eftirlit með störfum dómara í kvöld.

Ólafur Ingi Guðmundsson hefur þá eftirlit með störfum dómara í kvöld.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Rafholtsvellinum í Njarðvík þar sem heimamenn í Njarðvík taka á móti Aftureldingu í 10.umferð Lengjudeildar karla.







Viðtöl og skýrsla væntanleg í kvöld.