Leik lokið!
VÍKINGAR HALDA ÁFRAM AÐ SKRIFA SÖGUNA
96. mín
DANIJEL DJURIC
Fær boltann til hægri eftir snögga skyndisókn og á skot sem Yuri ver enn og aftur.
Hefði verið gott að ná inn þriðja markið.
Hefði verið gott að ná inn þriðja markið.
95. mín
VALDIMAR ÞÓR
Fær boltann inn á teiginn frá Djuric en Yuri með frábæra vörslu
90. mín
Þetta var algjör óþarfi.
Mark úr víti!
Fitis Ioannidis
Setur boltann í vinstra hornið. Ingvar var í þessum bolta en spyrnan föst.Þetta var algjör óþarfi.
89. mín
Vítaspyrnudómurinn stendur
87. mín
Panathinaikos eru að fá vítaspyrnu.
Daníel Hafsteinsson dæmdur brotlegur inn á teignum. VAR skoðar. Normaðurinn fer í skjáinn og skoðar þetta sjálfur.
Daníel Hafsteinsson dæmdur brotlegur inn á teignum. VAR skoðar. Normaðurinn fer í skjáinn og skoðar þetta sjálfur.
87. mín
Gestirnir með hættulega fyrirgjöf inn á teiginn sem Ingvar nær ekki til en boltinn af Helga og í hornspyrnu.
84. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtTarik Ibrahimagic
81. mín
PANATHINAIKOS SETUR BOLTANN Í SLÁNNA
Tete með lúmskt skot en heppnin með Víkingum fer þessi ekki í netið.
79. mín
Gult spjald
Danijel Dejan Djuric
Stoppar hraða skyndisókn gestanna.76. mín
Valdimar Þór með geggjaða hugmynd. Reynir að vinna vin sinn Ara Sigurpáls inn á teignum en gestirnir rétt ná að koma í veg fyrir að Ari nái til boltans.
Þetta er alveg að hafast en fari leikurinn svona væri það frábært veganesti í síðari leikinn í Grikklandi.
Þetta er alveg að hafast en fari leikurinn svona væri það frábært veganesti í síðari leikinn í Grikklandi.
73. mín
Danijel Djuric sleppur einn í gegn en dómarinn flautar brot á Matta Vill í aðdragandanum.
71. mín
InnDanijel Dejan Djuric
ÚtErlingur Agnarsson
71. mín
Víkingar elska VAR
Það hefur hentað Víkingi afskaplega vel að VAR sé í Sambandsdeildinni. Í gegnum vegferð þeirra í keppninni hefur liðið hagnast vel á VAR myndbandstækninni. Það sem dómurunum hefur yfirsést hefur VAR bjargað.
Var annars að fá sent myndband frá Ölveri þar sem stuðningsmenn Víkings heima á Íslandi hittust. Þar er stemningin vægast sagt góð!
Víkingar elska VAR. Takk pic.twitter.com/rKjPv5PAe0
— Víkingur (@vikingurfc) February 13, 2025
Var annars að fá sent myndband frá Ölveri þar sem stuðningsmenn Víkings heima á Íslandi hittust. Þar er stemningin vægast sagt góð!
70. mín
Gult spjald
Filip Djuricic
66. mín
InnTete
ÚtDaniel Mancini
66. mín
InnAdam Cerin
ÚtManolis Siopis
66. mín
InnKarol Swiderski
ÚtAlexander Jeremejeff
59. mín
Markið hjá Matta
2-0 in HEL. MATTHÍAS VILHJÁLMSSON!! KOMA SVOOOO pic.twitter.com/uv3KYNzY3f
— Víkingur (@vikingurfc) February 13, 2025
58. mín
2-0 EUROVIKES!
MAAAAAAAAARK
Matthías Vilhjálmsson
Erlingur fær boltann og á skot sem fer af varnarmanni og í stöngina. Matthías Vilhjálmsson er fyrstur að átta sig á hlutunum og setur boltann í autt netið.2-0 EUROVIKES!
56. mín
Matti Villa skorar en flaggið á loft!
VAR skoðar
55. mín
Lítið að gerast í þessu en leikurinn er að spilast fullkomnlega fyrir Víkinga.
50. mín
InnMatthías Vilhjálmsson
ÚtAron Elís Þrándarson (f)
49. mín
Jón Guðni brotlegur og Panathinaikos fá aukapsyrnu á hættlegum stað.
48. mín
Jermejeff fær boltann inn fyrir og fellur en ekkert dæmt.
47. mín
Kraftur í gestunum í byrjun síðari hálfleiksins
Víkingar að falla full aftarlega fyrir minn smekk.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
InnJón Guðni Fjóluson
ÚtOliver Ekroth (f)
Oliver Ekroth fer af velli og Jón Guðni kemur inn í hans stað. Óvænt! Hélt að Jón Guðni væri ekki leikfær.
45. mín

Myndir frá ljósmyndara Víkings hér í Helsinki

45. mín
Skemmtilegt sjónarhorn á markið
DAVÍÐ. ÖRN. ATLAAAASON. 1-0. KOMA SVOOOOOOO pic.twitter.com/nu9x9CqwYv
— Víkingur (@vikingurfc) February 13, 2025
45. mín
Grísku blaðamennirnir tala mjög hátt og ákveðið sín á milli í fjölmiðlaaðstöðunni í hálfleik. Ef Panathinaikos gerir ekki betur í seinni hálfleiknum munu þeir væntanlega fá að heyra það í fjölmiðlum. Menn eru að skipuleggja stríðsfyrirsagnir.
45. mín
Halfleikstölfræði af heimasíðu UEFA
Með boltann: 38% - 62%
Marktilraunir: 3-8
Heppnaðar sendingar: 106-292
Rangstöður: 0-2
Gul spjöld: 1-0
Marktilraunir: 3-8
Heppnaðar sendingar: 106-292
Rangstöður: 0-2
Gul spjöld: 1-0
45. mín
Hvað kostar flug til Aþenu?
Sambandsdeildin er heldur betur að fara Víkingi vel. Öflugur varnarleikur í fyrri hálfleiknum og skipulagið að ganga vel upp. Ingvar Jónsson öruggur í markinu. Heldur betur sterk staða í hálfleik og örugglega margir stuðningsmenn Víkings farnir að skoða flug til Aþenu í næstu viku...
En það getur ýmislegt gerst síðustu 45 mínúturnar í þessum leik.
En það getur ýmislegt gerst síðustu 45 mínúturnar í þessum leik.
45. mín
Hálfleikur
Frábær staða fyrir Víkinga
Rohit Saggi frá Noregi flautar til hálfleiks. Víkingar fara með 1-0 forskot inn í hálfleikinn.
Tökum okkur korter í pásu og komum svo með síðari hálfleikinn.
Tökum okkur korter í pásu og komum svo með síðari hálfleikinn.
45. mín
Erlingur fer niður
VAR er að skoða mögulega vítaspyrnu!
Víkingar fá ekki vítaspyrnu. Leikurinn heldur áfram.
Víkingar fá ekki vítaspyrnu. Leikurinn heldur áfram.
45. mín
Daniel Mancini með aukaspyrnu inn á teig Víkinga og Sverrir Ingi með skalla yfir markið.
45. mín
Fimm mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik
Meiðsli og VAR skoðun ástæðan fyrir honum
43. mín
Gestirnir fá hornspyrnu
Daniel Mancini tekur hana en Víkingar verjast.
Tíminn virðist vinna með Víkingum. Koma svo!
Tíminn virðist vinna með Víkingum. Koma svo!
41. mín
Gult spjald
Davíð Örn Atlason
Þetta virtings rosalega saklaust hjá Davíði. Virðist aðeins rekast í tánna á Manolis Siopis.40. mín
Meiðslakrísa hjá Grikkjunum
Rui Vitoria stjóri Panathinaikos talaði um meiðslakrísu liðsins á fréttamannafundi í gær. Hún verður bara stærri. Tveir farnir af velli tognaðir í fyrri hálfleik. Elton Fikaj sem er kominn við hlið Sverris í vörn liðsins er 19 ára og algjörlega óreyndur á þessu leveli.
37. mín
InnElton Fikaj
ÚtErik Palmer-Brown
34. mín
Leikmenn Panathinaikos hrynja hver eftir annan
Ekki vanir þessum kulda og núna liggur Erik Palmer-Brown eftir og þarf aðhlyningu.
30. mín
Alexander Jeremejeff fær boltann inn á teig Víkinga og nær skalla úr mjög góðu færi en skallinn laus og beint á Ingvar.
27. mín
Karol Swiderski fær boltann inn fyrir og nær skoti sem Ingvar ver en flaggið á loft.
24. mín
Ari Sigurpáls nálægt því að sleppa í gegn en Erik Palmer nær að stoppa Ara.
22. mín
InnKarol Swiderski
ÚtTasos Bakasetas
21. mín
DANÍEL HAFSTEINSSON!!
Fær boltann rétt fyrir utan teig og smell hittir boltann en boltinn rétt framhjá.
20. mín
Bakasetas gengur af velli og virðist ekki geta haldið leik áfram.
Þetta er vel fyrir Víkinga.
Þetta er vel fyrir Víkinga.
18. mín
Gestirnir ná góðu skoti á markið sem Ingvar ver vel!
17. mín
Fyrsta Evrópumark Davíðs
Sá valdi flottan tíma til að skora það...
13. mín
Erlingur Agnarsson skallaði boltann til Davíðs. Það var skoðað í VAR hvort Erlingur hefði verið rangstæður en svo er ekki.
VÍKINGUR KEMST YFIIIR!!!!!
Davíð Örn Atlason (stoðsending: Erlingur Agnarsson )
Hættuleg aukaspyrna frá Daníel sem skapaði mikla ólgu í teignum. Skot frá Tarik fór í höfuðið á Aroni Þrándar, markvörður Pana reyndi að kýla boltnn en það gekk ekki, hann datt á Davíð sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í autt markið!Erlingur Agnarsson skallaði boltann til Davíðs. Það var skoðað í VAR hvort Erlingur hefði verið rangstæður en svo er ekki.
12. mín
Víkingur fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri. Danni Hafsteins að fara að taka spyrnuna.
11. mín
Ingvar Jónsson greip fyrirgjöf frá Mancini áðan. Annars er bara þokkalegasta jafnvægi í þessum leik.
9. mín
Langur bolti fram sem Ari Sigurpáls kemst í en þeir grísku ná að stöðva hann.
6. mín
Ekroth með langa sendingi fram á Ara sem var svo nálægt því að koma knettinum á Valdimar sem hefði þá verið í góðu færi, en varnarmaður Panathinaikos náði að komast fyrir.
4. mín
Það eru um 800 áhorfendur á leiknum, fámennt en ótrúlega góðmennt. Stuðningsmenn Víkings syngja og tralla. Þessi gríðarlegi kuldi hefur væntanlega dregið úr mætingu hlutlausra heimamanna hér í Helsinki.
3. mín
Grikkirnir að hóta í byrjun
Panathinaikos í hættulegri sókn. Mancini fyrst með skot sem Ingvar varði, svo kom annað skot úr teignum sem Ingvar varði einnig.
1. mín
Leikur hafinn
Panathinaikos byrjaði með boltann og sækir í átt að Ólympíuleikvangnum
Aron Elís Þrándarson með fyrirliðabandið hjá Víkingi.
Fyrir leik
Íslensk lög í spilaranum
Þetta er auðvitað heimaleikur Víkings og það eru íslensk lög sem fá að óma í kerfinu. Prettyboitjokko og fleiri góðir listamenn. Það er ekki eðlilega kalt hér í Helsinki! Þannig viljum við hafa það!
Fyrir leik
WELCOME TO HEL

Fyrir leik
Stemning á gamla írska
Það var góðmennt á upphitun stuðningsmanna Víkings í dag á gamla írska barnum í miðborg Helsinki.
13.02.2025 14:38
Björn Bjartmarz bjartsýnn: Besta ráðning félagsins
13.02.2025 14:55
Formaðurinn spenntur: Risastór stund í íslenskum íþróttum
Fyrir leik
Viðtal við Sölva Ottesen
Fyrir leik
Jón Guðni Fjóluson skráður á bekkinn, er greinilega ekki heill til að byrja. Sveinn Gísli Þorkelsson fær stórt tækifæri í vörn Víkings í kvöld og þá er Helgi Guðjónsson meðal byrjunarliðsmanna.
Sverrir Ingi Ingason er í byrjunarliði Panathinaikos en Hörður Björgvin Magnússon er á meiðslalista liðsins.
Byrjunarliðin komin í hús

„Þetta verkefni leggst mjög vel í mig, risaverkefni og mjög spennandi. Þetta er einn af, ef ekki bara stærsti leikurinn í sögunni hjá íslensku félagsliði, og er það klárlega hjá Víkingi. Við erum bara virkilega spenntir og þakklátir fyrir að vera í þessari stöðu. Þetta er hrikalega stórt," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um komandi leiki gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni.
Sölvi tók við sem aðalþjálfari Víkings í síðasta mánuði en hann var aðstoðarmaður Arnars Gunnlaugssonar sem ráðinn hefur verið landsliðsþjálfari Íslands.
Stærsti leikur íslensks félagsliðs

07.02.2025 23:59
Stærsti leikur íslensks félagsliðs - „Náttúrulega galið ef þú spáir í því"
Fyrir leik
Víkingur án sex leikmanna
Fjórir leikmenn verða frá vegna meiðsla og tveir vegna leikbanns. Róbert Orri Þorkelsson tognaði í leik Víkings gegn HK í Lengjubikarnum, Gunnar Vatnhamar glímir við hnémeiðsli, Pablo Punyed er að koma til baka eftir krossbandsslit síðasta sumar og framherjinn Atli Þór Jónasson er meiddur. Þeir Karl Friðleifur Gunnarsson og Nikolaj Hansen eru svo í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda í keppninni.
Sverrir Örn Einarsson, fréttamaður Fótbolta.net, setti saman líklegt byrjunarlið Víkings og má sjá það hér:
07.02.2025 14:17
Víkingur án sex leikmanna gegn Panathinaikos
Sverrir Örn Einarsson, fréttamaður Fótbolta.net, setti saman líklegt byrjunarlið Víkings og má sjá það hér:
10.02.2025 14:42
Líklegt byrjunarlið Víkings gegn Panathinaikos
Fyrir leik
Norðmaður sér um að dæma leikinn, hinn 33 ára gamli Rohit Saggi. Hann hefur dæmt leiki í efstu deild Noregs síðan 2017 og var gerður að FIFA dómara ári síðar. Hann hefur verið að dæma í Meistaradeildinni.
Víkingur - Panathinaikos
Dómari: Rohit Saggi, Noregur
Aðstoðardómari 1: Morten Jensen, Noregur
Aðstoðardómari 2: Anders Olav Dale, Noregur
Fjórði dómari: Sigurd Kringstad, Noregur
VAR dómari: Tom Harald Hagen, Noregur
Aðstoðar VAR: Kristoffer Hagenes, Noregur
Norðmaður með flautuna

Norðmaður sér um að dæma leikinn, hinn 33 ára gamli Rohit Saggi. Hann hefur dæmt leiki í efstu deild Noregs síðan 2017 og var gerður að FIFA dómara ári síðar. Hann hefur verið að dæma í Meistaradeildinni.
11.02.2025 10:38
Fyrrum bandýdómari með flautuna hjá Víkingi
Víkingur - Panathinaikos
Dómari: Rohit Saggi, Noregur
Aðstoðardómari 1: Morten Jensen, Noregur
Aðstoðardómari 2: Anders Olav Dale, Noregur
Fjórði dómari: Sigurd Kringstad, Noregur
VAR dómari: Tom Harald Hagen, Noregur
Aðstoðar VAR: Kristoffer Hagenes, Noregur
Fyrir leik
Sverrir Ingi: Verður ekki auðvelt einvígi
„Það er leiðinlegt fyrir mig að ekki sé spilað á Íslandi. Það hefði verið mikil upplifun að koma heim og spila á Íslandi í Evrópukeppni," sagði landsliðsvarnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason í viðtali við Morgunblaðið í vikunni. Sverrir spilar með Panathinaikos og er að far að spila gegn íslensku liði í fyrsta sinn á atvinnumannaferlinum.
„Þótt við séum sigurstranglegri verður þetta ekki auðvelt einvígi. Þeir hafa engu að tapa og munu gera allt til að sækja úrslit."
„Þótt við séum sigurstranglegri verður þetta ekki auðvelt einvígi. Þeir hafa engu að tapa og munu gera allt til að sækja úrslit."
11.02.2025 11:06
Sverrir Ingi: Leiðinlegt að ekki sé spilað á Íslandi
Fyrir leik
Velkomin með okkur á Bolt leikvanginn í Helsinki þar sem fyrri leikur Víkings og Panathinaikos í Sambandsdeildinni fer fram. Seinni leikurinn verður eftir viku í Aþenu en sigurliðið í einvíginu kemst í 16-liða úrslitin!
Um er ræða skráðan heimaleik Víkings en vegna lélegra vallarmála á Íslandi er fyrri leikurinn hér í Helsinki. Það er kuldi, gervigras og áhorfendur verða innan við þúsund talsins.
Halló Helsinki!

Takk fyrir okkur í kvöld!