Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta-deild kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 2
Fram
Fram
Jordyn Rhodes 39'1 - 01 - 154' Una Rós Unnarsdóttir1 - 265' Murielle Tiernan
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Fram áfram á sigurbraut

Hvað réði úrslitum?

Framkonur komu sterkari til leiks í seinni hálfleik, jöfnunarmark Unu Rósar setti líf í leikinn og Framkonur tóku öll völdin á vellinum. Murielle bætti síðan seinna markinu við 10 mínútum seinna. Valskonur hins vegar misstu kraftinn og voru í raun ekki líklegar að jafna.

Bestu leikmenn

1. Una Rós Unnarsdóttir

Var gríðarlega öflug á miðjunni í dag, nautsterk og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild, þegar hún jafnaði leikinn fyrir Fram

2. Murielle Tiernan

Margar sem gera hér tilkall Svanhildur Sara, og Telma Steindórsdóttir voru öflugar en það sást hér í dag hversu mikilvægt það er að hafa reynslubolta eins og Murielle. Hún gerði gríðarlega vel í seinna marki Fram og veit hvað þarf til að klára mikilvæga leiki fyrir sitt lið.

Atvikið

Elaina markmaður Fram keyrði Berglindi niður undir lok fyrri hálfleiks og spurning hvort ekki hefði átt að dæma víti. Hefði Valur fengið víti, skorað og leitt í hálfleik 2-0 hefðum við getað séð allt annan leik. Einnig hægt að nefna hér jöfnunamark Unu sem kom smá eins og þruma úr heiðskýru lofti

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að Fram heldur áfram á sigurbraut í deildinni og komnar með 15 stig. Valur hins vegar en með 9 stig og hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 27. apríl þegar þær unnu Þór/KA.

Vondur dagur

Set þetta á Valsliðið í heild, komu mjög andlausar út í seinni hálfleik. Mjög ólíkt því sem við eigum að venjast frá stórliði eins og Val. Eftir að þær lentu svo undir var eins og allt hefði brostið og voru ekki líklegar til að jafna.

Dómarinn - 6

Dómaratríóið stóð sig vel í dag, ekki mikið um erfiðar ákvarðanir og leyfði leiknum að fljóta vel. Hins vegar spurning hvort ekki hefði átt að dæma vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.