Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Besta-deild kvenna
Fjarðabyggðarhöllin
FHL
FHL
0 - 4
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 166' Bergdís Sveinsdóttir0 - 268' Linda Líf Boama0 - 372' Dagný Rún Pétursdóttir0 - 480' Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir (sjm)
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: Martraðarkafli FHL réði úrslitum í fallslagnum gegn Víkingi

Hvað réði úrslitum?

Þetta var einn af verstu fimmtán mínútna köflum sem ég hef séð í fótboltaleik. Um leið og fyrsta markið leit dagsins ljós á 66. mínútu hrundi FHL-liðið algjörlega. Aðeins fimm mínútum síðar var staðan orðin 3-0 Víkingi í vil. Korteri frá fyrsta marki var staðan komin í 4-0 eftir sjálfsmark – og það segir ekki alla söguna. Víkingur átti í raun að bæta við að minnsta kosti tveimur mörkum á þessum ótrúlega, já, ég endurtek, fimmtán mínútna kafla.

Bestu leikmenn

1. Linda Líf Boama

Hún átti mjög flottan leik í dag og nýtti líkamlega yfirburði sína vel gegn varnarlínu FHL. Hún var stöðugt ógnandi, skoraði gott mark og hefði hæglega getað bætt við fleiri. FHL-vörnin átti engin svör við kraftinum í henni hér í dag.

2. Freyja Stefánsdóttir

Hún átti fínan leik og lagði upp tvö mörk. Ógnin var stöðug allan leikinn, bæði frá hægri og vinstri kanti, og hún skapaði sífellt usla í vörn FHL. Hún hefði vel getað skorað sjálf, en tvær stoðsendingar dugðu að þessu sinni.

Atvikið

Fyrsta mark Víkinga kom á 66. mínútu. Fram að því höfðu stelpurnar í Víkingi vissulega verið sóknarsinnaðar og skapað nokkur hálffæri, en lítið verið að frétta af alvöru marktækifærum. En þegar Bergdís braut ísinn og kom Víkingi loksins á bragðið, breyttist leikurinn algjörlega. Á aðeins fimmtán mínútum féllu fjögur mörk og staðan var orðin 4-0 eftir ævintýralega slakan kafla hjá FHL, sem liðið vill eflaust gleyma sem fyrst.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin staðfesta það sem flestir vissu fyrirfram: FHL-liðið er í miklum vandræðum og situr enn á botninum í Bestu deild kvenna. Níu umferðir eru nú búnar, liðið er enn án stiga og markatalan er -25. Það þarf algert kraftaverk fyrir austan ef FHL á ekki að fara beina leið niður í Lengjudeildina á ný. Fyrir stelpurnar úr Fossvoginum voru þetta hins vegar þrjú afar dýrmæt stig. Þær jafna Tindastól að stigum og bæta markatöluna verulega. Þótt Víkingur sé enn í fallsæti, þá er staðan allt önnur en hún var fyrir leik.

Vondur dagur

Alveg rosalega vondan kafla átti FHL liðið eins og það leggur sig frá 66. til 80. mínútu þegar liðið fékk á sig fjögur mörk án þess að blikka. FHL vörnin í heild átti erfiðan dag og kórónaði daginn sinn á neikvæðan hátt með sjálfsmarki og kom Víkingsstelpunum fjórum mörkum yfir. Katrín Edda og Íris Vala áttu sérstaklega erfitt uppdráttar í þessum leik.

Dómarinn - 7

Brynjari tókst vel til með dómgæsluna í dag. Leikurinn var almennt vel dæmdur og hann hélt góðu flæði. Eitt atvik stendur þó upp úr í fyrri hálfleik þegar Calliste missti boltann og féll – þar dæmdi Brynjar aukaspyrnu, sem má deila um. Fyrir utan það var lítið út á frammistöðu hans að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.