Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Þórsvöllur Vey
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 120' Sigurður Arnar Magnússon (sjm)0 - 276' Tobias Thomsen
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Breiðablik á toppinn eftir sigur á ÍBV

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik voru töluvert sterkari aðilinn í þessum leik. Þeir sköpuðu sér hættulegri færi og skoruðu tvö góð mörk.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Orri Þorsteinsson

Var frábær í dag. Gerði varnarmönnum ÍBV oft erfitt fyrir, var að skapa mikið og var mjög líflegur í spili Blika. Fór oft upp og niður kantinn og kom sér í mjög góðar stöður. Gerði svo mjög vel í fyrsta markinu sem hann bjó nánast til sjálfur með því að vinna boltann af varnarmanni ÍBV og kom boltanum fyrir, en fyrirgjöfin fór af varnarmanni og inn í markið.

2. Arnór Gauti Jónsson

Var mjög góður inná miðsvæðinu hjá Breiðablik. Hrikalega öflugur í pressunni og vann boltann oft með því að koma sér fram fyrir mann á réttum tíma þannig að Blika gætu sótt hratt.

Atvikið

Var svo sem ekkert eitthvað ákveðið atvik en fyrsta mark Blika var frekar óheppilegt þar sem fyrirgjöf úr þröngri stöðu endaði á að vera mark og kannski hægt að setja spurningamerki við staðsetninguna á Marcel markverði Eyjamanna.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik fer á toppinn með 22 stig en Víkingur getur endurheimt toppsætið með sigri á KR á morgun. ÍBV situr enn um miðja deild með 14 stig.

Vondur dagur

Mér fannst svo sem enginn eiga slæman dag en eins og ég kom inná áðan þá verð ég að setja spurningamerki við Marcel markvörð Eyjamanna í fyrra markið Breiðabliks í dag.

Dómarinn - 8

Vilhjálmur dæmdi leikinn mjög vel og ekki mikið um nein vafaatriði. Ekkert út á hann að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.