Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Besta-deild karla
Kerecisvöllurinn
13 gráður smá vindur og sólin skín
Vestri
Vestri
1 - 0
KA
KA
Diego Montiel 34'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Vestramenn með iðnaðarsigur gegn KA mönnum.

Hvað réði úrslitum?

Baráttann í Vestramönnum í dag var til fyrirmyndar og vörðust vel.

Bestu leikmenn

1. Gunnar Jónas Hauksson

Frábær orka og barátta í honum í dag og var stór partur af sigri vestramanna í dag

2. Diego Montiel

Skoraði mark Vestra í dag og hélt vel í boltann þegar hann fékk hann

Atvikið

Mark vestramanna. Þegar vestri kemst yfir í leikjum þá er mjög erfitt að koma tilbaka, fannst þeir bara liggja til baka og sigla sigrinum heim eftir að hafa skorað markið.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri í 3.sæti með 19 stig og KA í 9.sæti með 12 stig.

Vondur dagur

Guðjón Ernir Hrafnkelsson, hann var tekinn útaf í hálfleik. Hann réði ekkert við Diego Montiel í fyrri hálfleik og lét hann fara illa með sig í markinu sem Vestri skorar.

Dómarinn - 6

Ívar setti línu sem hann hélt sig við í þessum leik, menn voru misánægðir með hann en mér fannst hann bara dæma þennan leik ágætlega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.