Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar, sól og blíða.
Afturelding
Afturelding
4 - 1
ÍA
ÍA
0 - 117' Viktor JónssonElmar Kári Enesson Cogic 33'1 - 1Elmar Kári Enesson Cogic 71'2 - 1Benjamin Stokke (víti) 85'3 - 1Hrannar Snær Magnússon 90'4 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Afturelding rís upp töfluna

Hvað réði úrslitum?

Afturelding byrjaði leikinn ekki vel og Skagamenn hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk í upphafi. Elmar Kári skorar hinsvegar gjörsamlega stórkostlegt mark til að jafna leikinn og eftir það var allt momentum með Aftureldingu sem gengu á lagið og skoruðu fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Benjamin Stokke

Skorar eitt mark og leggur upp önnur tvö. Markið sem Hrannar skorar kemur upp úr algjöru augnakonfekti af sendingu frá Norðmanninum.

2. Elmar Kári Enesson Cogic

Elmar kemur sér loks á blað í deildinni eftir brösuga byrjun. Sífellt ógnandi þess utan og hefði getað skorað fleiri mörk.

Atvikið

Jöfnunarmarkið. ÍA höfðu byrjað betur og virtust ætla að vinna leikinn en þá kemur Elmar með gjörsamlega stórkostlegt mark, jafnar leikinn og hleypir lífi í sína menn.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding fer upp í 7. sætið en áfram sitja ÍA á botninum og áhyggjurnar fara að aukast.

Vondur dagur

Jón Þór Hauksson er með Skagamenn í neðsta sæti. Mikil vonbrigði og hlutirnir verða að fara snúast við ef ekki á illa að fara.

Dómarinn - 8

Sigurður Hjörtur flottur í dag, vítadómurinn var réttur þó Hrannar hafi gert mikið úr þessu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.