SKÝRSLAN: Fram með sannfærandi sigur á FH á Lambhagavellinum
Hvað réði úrslitum?
Gæði Fram á síðasta þriðjungi vallarins og þeir eru heilt yfir miklu beinskeyttari og ákafari en FH.
Bestu leikmenn
1. Sigurjón Rúnarsson
Halda hreinu og gerir svo út af við leikinn með marki. Verðskuldað.
2. Róbert Hauksson
Iðinn við kolann og kom FH í alls kyns vandræði. Hann átti líka stoðsendinguna í fyrra markinu.
Atvikið
Þegar Sigurjón Rúnarsson klárar leikinn. FH áttu alveg möguleika á jafntefli fyrir það og fengu nokkra fína sénsa. En þarna fór þetta endanlega.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Framarar eru komnir í sjötta sæti deildarinnar og þar með í efri hlutann. FH-ingar sitja hins vegar í 11. sæti eða fallsæti.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir sóknarlínu FH. Það vantar upp á gæði á síðasta þriðjungi. Þeir eru oft að koma sér í fínar stöður en nýta þær mjög illa. Auk þess hafa þeir ekki skorað mark í seinustu tveimur leikjum.
Dómarinn - 6
Missti stjórn á leiknum um tíma og spjaldaglaður. Fínn.



