Fótbolti.net bikarinn
Haukar

LL
1
2
2

Fótbolti.net bikarinn
KFG

LL
4
2
2

Fótbolti.net bikarinn
Magni

LL
1
3
3

Fótbolti.net bikarinn
Grótta

LL
2
1
1


KFG
4
2
Víðir

0-1
David Toro Jimenez
'13
Bóas Heimisson
'28
1-1
Kristján Ólafsson
'30
2-1
Jón Arnar Barðdal
'45
3-1
3-2
Kristófer Snær Jóhannsson
'84
Kristján Ólafsson
'90
4-2
25.06.2025 - 19:15
Samsungvöllurinn
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Kristján Ólafsson (KFG)
Samsungvöllurinn
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Kristján Ólafsson (KFG)
Byrjunarlið:
25. Guðmundur Rafn Ingason (m)
7. Jón Arnar Barðdal (f)

10. Helgi Snær Agnarsson
('82)

11. Kristján Ólafsson


15. Arnar Ingi Valgeirsson
21. Adrían Baarregaard Valencia

22. Bóas Heimisson

24. Daníel Darri Þorkelsson
('5)

37. Guðmundur Thor Ingason
('39)

90. Djordje Biberdzic
('82)

94. Jökull Sveinsson
('82)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. Stefán Alex Ríkarðsson
('5)

5. Benedikt Pálmason
('82)

8. Atli Freyr Þorleifsson
('82)

19. Ólafur Viðar Sigurðsson
('82)

23. Arnar Darri Þorleifsson
95. Eyþór Örn Eyþórsson
('39)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Veigar Páll Gunnarsson (Þ)
Andri Sigurjónsson
Róbert Kolbeins Þórarinsson
Adrían Nana Boateng
Gul spjöld:
Adrían Baarregaard Valencia ('53)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
KFG slær Víði úr leik
Góður dómari leiksins hefur flautað af. Þessi leikur var prýðileg skemmtun og bæði lið eiga hrós skilið fyrir hörkuleik með flottum tilþrifum inn á milli.
Maður leiksins er Kristján Ólafsson sem skoraði tvö mörk fyrir KFG, það seinna var stórglæsilegt svo vægt sé til orða tekið!
Takk fyrir mig!
Maður leiksins er Kristján Ólafsson sem skoraði tvö mörk fyrir KFG, það seinna var stórglæsilegt svo vægt sé til orða tekið!
Takk fyrir mig!
90. mín
Uppbótartími í gangi
Erum hér í uppbótartíma en ljóst að KFG er komið skrefi nær hybrid grasi Laugardalsvallar. Endurtek það að dregið verður í 16-liða úrslitin í hádeginu á föstudag, í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
90. mín
MARK!

Kristján Ólafsson (KFG)
Víðismenn lögðu allt í sóknina og Kristján, sem hefur komið sér í hvert dauðafærið á fætur öðru, innsiglar hér sæti KFG í 16-liða úrslitum. Fékk allan tíma heimsins í teignum til að athafna sig og koma boltanum í netið!
90. mín
Síðasta mínútan í hefðbundnum leiktíma
Víðir að rembast eins og rjúpan við staurinn að skapa sér færi og eiga möguleika á jöfnunarmarki.
88. mín
Jón Arnar með hornið, Eyþór Örn skallar en þarf að teygja sig í boltann og nær ekki að stýra honum á markið.
87. mín
Stuðningsmenn Víðis taka vel við sér og hvetja sitt lið áfram. Í þessum skrifuðu orðum kemst Kristján í annað dauðafæri, varnarmaður Víðis kemst fyrir skotið og boltinn endar í hornspyrnu.
86. mín
Kristján Ólafsson hefði getað klárað þetta fyrir KFG en hitti boltann herfilega í dauðafæri og skaut hátt yfir!
84. mín
MARK!

Kristófer Snær Jóhannsson (Víðir)
Spenna á lokasprettinum!!!
Varamaðurinn Kristófer Snær sleppur skyndilega einn í gegn og klárar hreint frábærlega! Vippar boltanum rétt yfir markvörð heimamanna!
Alvöru lokamínútur framundan!
Alvöru lokamínútur framundan!
78. mín
KFG líklegra til að bæta við þessar mínútur heldur en Víðir að minnka muninn. Heimamenn fengið nokkrar hornspyrnur í röð og Helgi Snær fékk fínt skallafæri í teignum.
72. mín
Það hefur dregið verulega af Víðismönnum og maður skynjar ekki að þeir hafi mikla trú á því að þeir geti komið til baka úr þessari stöðu.
65. mín
David Toro kemst í hættulega stöðu í teignum sem Víðismenn náðu ekki að nýta sér. Þarna hefðu þeir getað komið sér inn í þetta.
60. mín
Flott sókn Víðismanna! David Toro með frábæra sendingu í teiginn og Uros Jemovic á skot í hliðarnetið.
56. mín
David Toro reynir skot úr þröngu færi en hittir boltann afleitlega og hann siglir örugglega framhjá.
53. mín
Einn gegn markverði!
Djordje Biberdzic skyndilega sloppinn einn í gegn en markvörður Víðis gerir vel og lokar á hann. Þarna hefði KFG getað farið langt með að gera út um leikinn!
51. mín
Víðismenn einokað boltann í upphafi seinni hálfleiks en ekki náð að skapa sér opið færi. Óskum Álftanesi og Gróttu til hamingju með að vera í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin á föstudaginn.
25.06.2025 20:10
Fótbolti.net bikarinn: Laglegt aukaspyrnumark fyrirliðans sendi Álftanes áfram - Grótta vann Dalvík/Reyni
46. mín

Inn:Jón Orri Sigurgeirsson (Víðir)
Út:Jón Garðar Arnarsson (Víðir)
Búið að flauta seinni hálfleik af stað
Kaffi og sígó að baki og seinni hálfleikurinn er farinn í gang. Markvarðaskipti hjá Víðismönnum.
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki!
Toro átti skot í lok fyrri hálfleiksins sem var varið.
Fjögur mörk í fyrri hálfleik, þar af eitt úr allra efstu hillu, og slatti af færum, línubjörgunum og stuði. Vonandi verður það sama á boðstólnum í seinni hálfleik. KFG leiðir mjög verðskuldað í hálfleik, eftir að hafa lent undir í leiknum. Heyrumst eftir korter!
Fjögur mörk í fyrri hálfleik, þar af eitt úr allra efstu hillu, og slatti af færum, línubjörgunum og stuði. Vonandi verður það sama á boðstólnum í seinni hálfleik. KFG leiðir mjög verðskuldað í hálfleik, eftir að hafa lent undir í leiknum. Heyrumst eftir korter!
45. mín
MARK!

Jón Arnar Barðdal (KFG)
Í UPPBÓTARTÍMA FYRRI HÁLFLEIKS!
Þéttingsfast skot fyrir utan teig, í bláhornið! Óverjandi. KFG komið í góða stöðu!
44. mín
Helgi Snær Agnarsson, fyrrum þjálfari Einherja, með máttlítinn skalla að marki Víðis eftir hornspyrnu. Jón Garðar markvörður ekki í vandræðum með að grípa boltann.
39. mín

Inn:Eyþór Örn Eyþórsson (KFG)
Út:Guðmundur Thor Ingason (KFG)
Önnur skipting hjá KFG vegna meiðsla
Vinstri bakvörðurinn þarf að fara af velli og við þessa skiptingu eru hrókeringar á liðinu, smá hringekja.
38. mín
ÆVINTÝRALEG BJÖRGUN!
Vonandi eru allir búnir að panta sér pizzu
Adrían Baarregaard Valencia svo nálægt því að skora þriðja mark KFG. Páló og aðrir stuðningsmenn KFG voru byrjaðir að fagna í stúkunni en Aron Örn Hákonarson bjargaði á línu á ævintýralegan hátt.
Adrían Baarregaard Valencia svo nálægt því að skora þriðja mark KFG. Páló og aðrir stuðningsmenn KFG voru byrjaðir að fagna í stúkunni en Aron Örn Hákonarson bjargaði á línu á ævintýralegan hátt.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
MARK!

Kristján Ólafsson (KFG)
DÝRARI TÝPAN! Þvílíkt skot!
Vá takk fyrir túkall! Þetta var úr efstu skúffu.
Eftir baráttu í teignum eftir hornspyrnu KFG þá dettur boltinn á Kristján fyrir utan teiginn sem nær draumaskoti upp við samskeytin!
Jón Garðar í marki Víðis stendur bara eins og stytta á línunni og horfir á boltann syngja í netinu.
Eftir baráttu í teignum eftir hornspyrnu KFG þá dettur boltinn á Kristján fyrir utan teiginn sem nær draumaskoti upp við samskeytin!
Jón Garðar í marki Víðis stendur bara eins og stytta á línunni og horfir á boltann syngja í netinu.
29. mín
David Toro að gera sig líklegan til að skora annað mark sitt. Á tvær tilraunir með stuttu millibili, Guðmundur Rafn ver þá fyrri en sú seinni flýgur yfir.
28. mín
MARK!

Bóas Heimisson (KFG)
Stoðsending: Jón Arnar Barðdal
Stoðsending: Jón Arnar Barðdal
KFG jafnar úr hornspyrnu!
Bóas Heimisson með flott skallamark eftir hornspyrnu frá vinstri og staðan er orðin jöfn!
Fín byrjun á þessum leik. Þeir áhorfendur sem borguðu sig inn hafa ekki verið sviknir.
Fín byrjun á þessum leik. Þeir áhorfendur sem borguðu sig inn hafa ekki verið sviknir.
25. mín
Skottilraun KFG
Kristján Ólafsson, sonur Óla Kristjáns þjálfara kvennaliðs Þróttar, með skottilraun en hittir boltann ekkert sérstaklega vel og hann flýgur töluvert framhjá markinu.
23. mín
Leikurinn stöðvaður eftir höfuðhögg. Skot sem fer í höfuðið á Daniel Beneitez sem liggur eftir. Brynjar dómari stöðvar leikinn tímabundið.
22. mín
Skottilraun Víðismanna
David Toro með nokkuð lúmska skottilraun fyrir utan teig, framhjá markinu. Ekkert galin tilraun.
20. mín
Bréf úr Vesturbænum
KV og Hvíti Riddarinn eru að eigast við í þessari keppni, leikurinn hófst á sama tíma.
"Mark ársins komið í Fótbolti.net bikarkeppninni. Leikmaður Hvíta fékk boltan rétt fyrir utan eigin vítateig, hljóp í gegnum alla vörn KV og þegar hann var kominn að vítateig KV vippaði hann boltanum yfir markmann KV. Maradona HM 1986."
"Mark ársins komið í Fótbolti.net bikarkeppninni. Leikmaður Hvíta fékk boltan rétt fyrir utan eigin vítateig, hljóp í gegnum alla vörn KV og þegar hann var kominn að vítateig KV vippaði hann boltanum yfir markmann KV. Maradona HM 1986."
17. mín
KFG nálægt því að jafna!
Helgi Snær með skot en það er bjargað á línu! KFG að kalla eftir því að fá hendi, mark, eða bara eitthvað. Áfram heldur leikurinn!
13. mín
MARK!

David Toro Jimenez (Víðir)
Fyrsta færið hjá Víði og það er mark!
Algjörlega gegn byrjun leiksins!
David Toro rænir boltanum af leikmanni KFG og kemst í gegn, kemur boltanum framhjá Guðmundi markverði KFG og boltinn rúllar inn.
Mögulega skráist þetta mark á Uros Jemovic sem var mættur á línuna í baráttu við varnarmann KFG en ég gef Toro þetta. Hann á algjörlega heiðurinn af þessu marki.
David Toro rænir boltanum af leikmanni KFG og kemst í gegn, kemur boltanum framhjá Guðmundi markverði KFG og boltinn rúllar inn.
Mögulega skráist þetta mark á Uros Jemovic sem var mættur á línuna í baráttu við varnarmann KFG en ég gef Toro þetta. Hann á algjörlega heiðurinn af þessu marki.
13. mín
Djordje Biberdzic nálægt því að komast í dauðafæri en á slaka móttöku á boltann, missir hann frá sér og gerist svo brotlegur.
12. mín
Garðbæingar byrja betur
KFG heldur áfram að stjórna ferðinni. Bóas Heimisson með skot fyrir utan teig sem fer töluvert framhjá.
11. mín
Dregið á föstudag
Fyrsta leik dagsins í keppninni er lokið. Höttur/Huginn verður í pottinum þegar dregið verður á föstudaginn, í hádeginu, í beinni textalýsingu Fótbolta.net.
25.06.2025 19:05
Fótbolti.net bikarinn: Glæsileg endurkoma Hattar/Hugins
8. mín
KFG ógnar meira í upphafi leiks
KFG skeinuhættari í byrjun og hafa fengið tvær hornspyrnur sem fyrirliðinn Jón Arnar Barðdal hefur séð um að taka. Náðu hinsvegar ekki að skapa sér færi úr hvorugri spyrnunni.
5. mín

Inn:Stefán Alex Ríkarðsson (KFG)
Út:Daníel Darri Þorkelsson (KFG)
Skipting vegna meiðsla strax í byrjun.
5. mín
Mihajlo Bibercic er í stúkunni
Er að fylgjast með syni sínum Djordje sem spilar fyrir heimamenn í KFG.

Er að fylgjast með syni sínum Djordje sem spilar fyrir heimamenn í KFG.
4. mín
Aðhlynning
Daníel Darri Þorkelsson liggur eftir á vellinum eftir að hafa lent í samstuði við Dominic Briggs, leikmann Víðis.
Fyrir leik
Þá er allt til reiðu og liðin ganga til vallar
Ég er kominn inn í boxið góða og fólk er að koma sér fyrir í stúkunni. Menn eru að búast við jöfnum og skemmtilegum leik. Ef staðan verður jöfn að loknum venjulegum leiktíma þá verður framlengt, vítakeppni ef staðan verður enn jöfn eftir 120. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Stutt í leik og leikmenn að klára upphitun
Blaðamannaboxið er harðlæst og verið að leita að einhverjum með lyklavöld. Það reddast vonandi áður en blásið verður til leiks.
Fyrir leik
Tvö stig skilja liðin að á Íslandsmótinu
Eftir níu umferðir í 2. deildinni er KFG í 8. sæti með 10 stig en Víðir í 11. sæti með 8 stig. Liðin mættust síðasta föstudag hér í Garðabænum og þar vann KFG 2-1 sigur.
KFG 2 - 1 Víðir
1-0 Dagur Óli Grétarsson ('49 )
1-1 Haraldur Smári Ingason ('51 )
2-1 Kristján Ólafsson ('75 )
KFG 2 - 1 Víðir
1-0 Dagur Óli Grétarsson ('49 )
1-1 Haraldur Smári Ingason ('51 )
2-1 Kristján Ólafsson ('75 )
Fyrir leik
Liðin sem léku fyrsta úrslitaleikinn
KFG og Víðir léku til úrslita á Laugardalsvelli 2023, í fyrsta sinn sem keppnin var haldin.
Ólafur Bjarni Hákonarson kom KFG yfir í þeim leik, Tómas Leó Ásgeirsson jafnaði úr víti og það var svo dramatík í lokin þegar Elís Már Gunnarsson skoraði sigurmarkið á 88. mínútu.
Selfoss varð meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli. Selfoss er eðlilega ekki með ár þar sem liðið fór upp í Lengjudeildina
Ólafur Bjarni Hákonarson kom KFG yfir í þeim leik, Tómas Leó Ásgeirsson jafnaði úr víti og það var svo dramatík í lokin þegar Elís Már Gunnarsson skoraði sigurmarkið á 88. mínútu.
Selfoss varð meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli. Selfoss er eðlilega ekki með ár þar sem liðið fór upp í Lengjudeildina
29.09.2023 21:14
Fótbolti.net bikarinn: Víðir vann á Laugardalsvelli
01.10.2023 06:30
Myndaveisla: Víðir vann Fótbolti.net bikarinn







Fyrir leik
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Aðstoðardómarar: Nour Natan Ninir og Ásmundur Hrafn Magnússon.

Aðstoðardómarar: Nour Natan Ninir og Ásmundur Hrafn Magnússon.
Fyrir leik
Leiðin á Laugardalsvöll
Tindastóll, Ýmir, Reynir Sandgerði, Kári og KFA tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum í gær. Tíu leikir verða í kvöld og svo verður dregið í 16-liða úrslit keppninnar í beinni textalýsingu í hádeginu á föstudag.

Fyrir leik
Heil og sæl, velkomin með okkur á Samsungvöllinn í Garðabæ
Hér fer fram leikur KFG og Víðis í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.
miðvikudagur 25. júní
16:45 Höttur/Huginn-KÁ (Fellavöllur)
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)
mánudagur 7. júlí
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)

Hér fer fram leikur KFG og Víðis í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.
miðvikudagur 25. júní
16:45 Höttur/Huginn-KÁ (Fellavöllur)
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)
mánudagur 7. júlí
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)
Byrjunarlið:
12. Jón Garðar Arnarsson (m)
('46)

6. Paolo Gratton (f)
8. Ottó Helgason
10. David Toro Jimenez
('70)


11. Uros Jemovic
14. Daniel Beneitez Fidalgo
17. Cristovao A. F. Da S. Martins
21. Dominic Lee Briggs
('69)

24. Aron Örn Hákonarson
26. Róbert William G. Bagguley
27. Einar Örn Andrésson
('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Jón Orri Sigurgeirsson (m)
('46)

5. Dusan Lukic
('69)

7. Alexis Alexandrenne
('46)

19. Tómas Freyr Jónsson
25. Eyþór Ingi Einarsson
43. Þórir Guðmundsson
54. Kristófer Snær Jóhannsson
('70)
- Meðalaldur 22 ár


Liðsstjórn:
Sveinn Þór Steingrímsson (Þ)
Björgvin Freyr Larsson
Markús Máni Jónsson
Haraldur Smári Ingason
Snorri Már Jónsson
Cameron Michael Briggs
Gul spjöld:
Rauð spjöld: