
Á hverjum degi skyggnumst við inn í slúðurheima og skoðum það helsta sem er verið að velta fyrir sér í ensku miðlunum og víðar. BBC tekur saman.
Darwin Nunez (25), framherji Liverpool og úrúgvæska landsliðsins, vill helst fara til Napoli ef hann yfirgefur Anfield í sumar. (Football Italia)
Nottingham Forest hefur hafnað 45 milljóna punda tilboði frá Newcastle í sænska vængmanninn Anthony Elanga (23). Hann er metinn á 60 milljónir punda. (Sky Sports)
Barcelona er að íhuga að gera lánstilboð í Marcus Rashford (27), framherja Manchester United. (Guardian)
Newcastle er tilbúið að gera sænska framherjann Alexander Isak (25) að launahæsta leikmanni í sögu félagsins til að fæla frá áhuga frá Liverpool, Barcelona og Arsenal. (Times)
Fenerbahce hefur áhuga á Jadon Sancho (25), vængmanni Manchester United, sem er metinn á 25 milljónir punda. (TalkSport)
Sunderland hefur spurt Sassuolo út í franska vængmanninn Armand Laurente (26) . (ESPN)
Everton og Manchester United hafa áhuga á nígeríska miðjumanninum Wilfred Ndidi (28) hjá Leicester. Hann er með níu milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum. (Talksport)
Nottingham Forest og Marseille hafa áhuga á enska miðjumanninum Jordan Henderson (35) hjá Ajax. Hann er með ákvæði í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara á frjálsri sölu. (Mail)
Leeds hefur enn ekki fengið tilboð í franska markvörðinn Illan Meslier (25) þrátt fyrir fréttir af því að hann væri á leið í læknisskoðun hjá Fenerbahce. (Sky Sports)
Spænski sóknarleikmaðurinn Nico Williams (22) hjá Athletic Bilbao er með 50 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum. Hann hefur sagt félaginu að hann hyggist semja við Barcelona. (Athletic)
Everton, Brentford, West Ham og Fulham hafa áhuga á að fá Omari Hutchinson (21), vængmann enska U21 landsliðsins, frá Ipswich. (Mail)
Burnley er að undirbúa tólf milljóna punda tilboð í Loum Tchaouna (21), framherja franska U21 landsliðsins, frá Lazio. (Football Italia)
Giorgi Chakvetadze (25) hjá Watford, er á óskalistum úrvalsdeildarfélagana Sunderland og Burnley. Birmingham hefur einnig áhuga á georgíska miðjumanninum sem er metinn á um 5 milljónir punda. (Sunderland Echo)
Markvörðurinn Vladan Kovacevic (27) hjá Sporting mun gangast undir læknisskoðun hjá Norwich áður en hann verður seldur fyrir 2 milljónir punda. (Sky Sports)
Aston Villa er tilbúið að selja Louie Barry (22) í þessum mánuði og það setur fjölda liða í Championship-deildinni í viðbragðsstöðu. (Pete O'Rourke)
Athugasemdir