SKÝRSLAN: Njarðvíkingar styrkja stöðu sína
Hvað réði úrslitum?
Þessi leikur bauð ekki upp á mikla skemmtun endilega og ólíklegur til þess að vera endursýndur á mörgum heimilum næstu daga. Ágætlega jafnt með liðunum á köflum en þegar uppi var staðið voru það gæði Njarðvíkinga sem klára þennan leik.
Bestu leikmenn
1. Joao Ananias
Var mjög hrifinn af hans baráttu á miðjunni. Var oft að loka á sendingarleiðir og hirða upp lausa bolta. Munar um minna að hafa svon öflugan leikmann í "skítavinnunni"
2. Aron Snær Friðriksson
Vary frábærlega í fyrri hálfleiknum og var að koma út í sweeperinn þegar þess þurfti. Var oft að losa pressu á Njarðvíkingum líka. Varði vel þegar þess þurfti.
Atvikið
Sigurmark Njarðvíkinga var heldur ódýrt mark að fá á sig. Slæmt útspark sem endar hjá Dominik Radic sem fær að stilla sér upp í skotið og klárar þetta vel fyrir Njarðvíkinga
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar með þessum sigri. Fjölnismenn fara niður fyrir rauðu línuna og í fallsæti.
Vondur dagur
Enginn áberandi. Sigurjón Daði átti slæmt útspark sem leiddi til sigurmarksins en hann átti líka frábæra vörslu í þessum leik. Almo í liði Njarðvíkinga var í vandræðum með miðið á skotunum sínum. Erfitt að ætla henda einhverjum undir rútuna hérna.
Dómarinn - 6
Allt í lagi, ekki gott. Hugasa að það sé besta leiðin að lýsa þessu hjá teyminu í dag. Sumt gott og annað ekki.



