SKÝRSLAN: Sannfærandi sigur Keflavíkur í Suðurnesjaslag
Hvað réði úrslitum?
Keflavik voru yfir á öllum sviðum leiksins unnu mikið af seinni boltum og komu sér í mun betri stöður sóknarlega og varnarleikur Keflavíkur mjög góður.
Bestu leikmenn
1. Kári Sigfússon
Hann var mjög flottur í þessum leik með 2 stoðsendingar og mark og var valinn maður leiksins og ekki annað hægt en að vera sammála því.
2. Muhamed Alghoul
Var mjög flottur í leiknum kraftmikill og fljótur og var erfiður við að eiga og varnarmenn Grindavíkur voru í basli með hann.
Atvikið
Þegar boltinn barst á Kára eftir skot Muhamed sem var varið og hann einn fyrir galopna marki og skaut framhjá.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík eru búnir að koma sér í ágætis mál 2 stigum á eftir HK í mikilli baráttu um umspilsæti í 6 sæti og Grindavík að sogast nær fallbaráttu.
Vondur dagur
Adam Árni því miður en skoraði þrennu í síðasta leik get Leikni en var engan veginn að finna sig í dag.
Dómarinn - 7
Fannst Arnar Þór dæma þennan leik mjög fínt


