Fotbolti.net
@thorsteinnhaukuÞorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Selfoss
Selfoss
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
3 - 0
HK
HK
Aron Fannar Birgisson 20'1 - 0Raul Gomez Martorell 62'2 - 0Jón Daði Böðvarsson (víti) 78'3 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Selfyssingar frábærir í fyrsta heimaleik Jóns Daða

Hvað réði úrslitum?

Selfoss var betra liðið meira og minna allan leikinn og ekki að sjá að liðin væru að berjast á sitthvorum endanum í töflunni. Það er kannski klysja að segja að þeir hafi viljað sigurinn meira en það var samt mín upplifun í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Harley Willard

Erfitt val enda nokkrir í Selfossi sem ættu skilið að vera hér. Jón Daði með mark og stoðsendingu, Daði Kára frábær í sínum fyrsta leik, Ívan með lykilsendingar í tveimur mörkum og Aron Fannar skoraði og var mjög duglegur. En ég set þetta á Harley. Spilaði aftar en venjulega á miðjunni og sýndi hvað í honum býr. Frábær leikur hjá honum, án vafa hans besti leikur í sumar.

2. Daði Kárason

Frábær fyrsti leikur í Lengjudeildinni. Gerði sóknarmönnum HK lífið leitt og barðist allan leikinn. Fagnar tæklingum eins og mörkum og ég kann að meta það.

Atvikið

Hér gæti ég skrifað um rangstöðumark HK en ákveð frekar að minnast á innkomu Jóns Daða af bekknum. Skilaði marki og stoðsendingu í sínum fyrsta heimaleik fyrir Selfoss í 13 ár.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss fær smá andrými í botnbaráttunni á meðan HK er nú 7 stigum á eftir toppsætinu.

Vondur dagur

Sóknarlína HK. Eftir 3-0 sigur gegn Keflavík í seinustu umferð ollu fremstu menn HK mér vonbrigðum í kvöld. Virkuðu oft andlausir.

Dómarinn - 6

Spurning með rangstöðumark HK. Hef ekki séð það aftur en Hemmi Hreiðars fullyrðir í viðtali að leikmaðurinn hafi verið réttstæður. Að öðru leyti fannst mér Helgi bara nokkuð fínn í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.