Leik lokið!
Leiknir græja ótrúlega mikilvæg 3 stig
96. mín
Líklegast síðasta færið, Frosti leikur vel á vörnina en losar boltann siðan úr teygnum í pláss sem enginn liðsfélagi var í.
94. mín
Raúl með slagt skot sem vörnin ver.
91. mín
7mín í uppbót
89. mín
Sláinn!!!!
Selfoss aftur með skot í slá og Jón Daði fylgir eftir en erfitt skot sem fer framhjá.
87. mín
Selfoss eru að ógna
Brynjar með neglu en nautsterkar hendur Ólafs í markinu. ÞVÍLÍK VARSLA!!
85. mín
Díííí
Aron Einars með SVAKA tæklingu í teygnum en náði boltanum, tæpur að einfaldlega negla manninn niður og gefa gestunum víti.
84. mín
Elías að koma honum fyrir en Selfyssingar ná ekki að komast í mikilvægu boltana og skora.
80. mín
Elías fær vænlegt færi inní teyg en hittir ekki boltan heldur varnarmann og Leiknir fá aukaspyrnu.
Heimamenn að reyna drepa leikinn svolítið, enda mikilvæg 3stig sem þeir eru með í höndunum.
Heimamenn að reyna drepa leikinn svolítið, enda mikilvæg 3stig sem þeir eru með í höndunum.
78. mín
InnBrynjar Bergsson
ÚtAron Lucas Vokes
75. mín
Aron Einars brýtur á Ívan sem fær auka á góðum stað fyrir fyrirgjöf.
Skalli yfir markið.
Skalli yfir markið.
74. mín
Leiknir búnir að standa af sér alvöru álag og virðast vera komnir aftur með einhver völd.
Korter eftir og alvöru brekka fyrir gestina.
Korter eftir og alvöru brekka fyrir gestina.
71. mín
Selfoss að koma sér í gang!
Gestirnir fengu tvö dauðafæri og eitt eftir daraða dans í teygnum þar sem Ólafur þurfti að verja vel.
68. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtIgnacio Gil Echevarria
68. mín
InnRaul Gomez Martorell
ÚtHarley Bryn Willard
68. mín
InnEysteinn Ernir Sverrisson
ÚtEinar Bjarki Einarsson
68. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
64. mín
Aron Einars!
Hörkufæri, Aron fer í gegnum pakkan og nær af skoti nálægt markinu en fer yfir.
62. mín
Ívan fór í erfitt skot á hægri horni teygs og var næstum búin að smyrja hann í skeitin á nær en rétt yfir!
60. mín
InnDavíð Júlían Jónsson
ÚtSindri Björnsson
60. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
57. mín
Axel Freyr sem bjargaði aukaspyrnunni og kom boltanum aftur í hættusvæðið
Annað markið!
Þorsteinn Emil Jónsson (stoðsending: Sindri Björnsson)
Aukaspyrnan tekinn stutt og eftir smá bras nær Sindri að finna Þorstein í teygnum sem klárar þetta snyrtilega.Axel Freyr sem bjargaði aukaspyrnunni og kom boltanum aftur í hættusvæðið
55. mín
Gult spjald
Ignacio Gil Echevarria
Stoppar sókn Leiknis og heimamenn fá flotta færi fyrir aukaspyrnu.54. mín
DAUÐAFÆRI SELFOSS
Einar Bjarki með fyrigjöf sem fer rétt fyrir framan markið en gestirnir ná ekki að pinga honum í netið.
51. mín
Þorsteinn hittir boltan ekki vel og auðveld varsla á nær fyrir Blakala.
48. mín
Lág spyrna gegnum pakkan endar í skoti laaangt yfir frá Einari Bjarka.
47. mín
Selfoss að mæta vel í þennan seinni hálf leik, fá hornspyrnu.
46. mín
Komið aftur í gang!
Næst síðasta umferðin, Selfoss undir og í fallsæti einsog er.
Getum ekki búist við öðru en HÖRKU seinni hálfleik, mikið undir hér hjá báðum liðum og miklar hreyfingar á töflunni.
Getum ekki búist við öðru en HÖRKU seinni hálfleik, mikið undir hér hjá báðum liðum og miklar hreyfingar á töflunni.
45. mín
Hálfleikur
Róaðist verulega á leiknum eftir markið.
Heimamenn leiða leikinn og gestirnir þurfa að finna lausnir fyrir seinni hálfleikinn.
Selfoss detta fyrir neðan Leikni í töflunni ef þetta endar svona.
Einsog staðan er núna þegar það er hálfleikur í umferðinni er Selfoss í fallsæti og Leiknismenn hoppa úr fallinu í 10.sæti.

43. mín
Daði Bærings situr eftir, fær aðstoð frá læknateyminu.
Smá stopp, en virðist vera í lagi.
Smá stopp, en virðist vera í lagi.
40. mín
Harley fær skot í teygnum en þétt vörn heimamann lokar á alla hættu.
38. mín
Gult spjald
Sindri Björnsson
Brýtur á Aron Lucas á miðjunni.33. mín
Fær bara boltann í flugvallarhlaup og setur hann lágt í fjær.
HEIMAMENN KOMNIR YFIR!!
Leiknir með fyrsta MARKIÐ!!!!
Kári Steinn Hlífarsson
Einar Bjarki með agalega mistök eftir hornið, hreinsar sem aftasti maður beint í Kári sem var með alvöru pressu hlaup.Fær bara boltann í flugvallarhlaup og setur hann lágt í fjær.
HEIMAMENN KOMNIR YFIR!!
33. mín
Selfoss að stilla uppí hornspyrnu
29. mín
Aron Einars gegn sínum gömlu félögunum með fínan bolta í teyginn en Blakala grípur vel í.
27. mín
Vantar svolítið á síðasta þriðjung hjá báðum lið til að skapa sér eitthvað en baráttan á miðjunni er sterk.
23. mín
Leiknir gera vel að þétta teyginn og Selfoss nær engum almennilegum færum, breaka svo og Heimamenn fá horn.
21. mín
Selfyssingar íssskaldir
Einar Bjarki að leika sér sem síðasti maður og svo Daði með mikilvæga og góða tæklingu, Dagur Ingi hefði fengið dúndur færi!
17. mín
Jón Daði að fá boltan á miðjusvæðinu og með fínar þræðingar en gestirnir ná ekki að gera mikið við þær á lokahluta vallars.
14. mín
Deflection!
Hættulegt sko frá Nacho fer í þéttan varnarpakka og Ólafur heppinn að boltinn fór framhjá.
14. mín
Jón Daði með skot
Lágt skot utan teygs fer í varnarmann og hornspyrna.
13. mín
Jón Daði að vinna boltan fyrir miðju og reynir að þræða boltan í gegn en Ólafur öruggur.
11. mín
Selfoss að hreinsa vel en Leiknir að ná seinni boltanum.
10. mín
Leiknir líta vel út
Djarfir í boltum gegnum og Dagur Ingi óheppin með rangstöðu. en Leiknir að halda vel í boltan þessar mundir.
7. mín
Fyrsta færið!
Anton upp hægra meginn og fær fínt færi en skotið varið í horn.
6. mín
Leiknir að reyna finna sendingar yfir
Nokkuð djörf lína hjá gestunum og Leiknir að reyna tengja langa bolta í gegn.
3. mín
Horn fyrir Selfoss
Mikið fram og tilbaka en fyrsta horn er Selfossar.
Bolti á fjær og skallað í annað horn.
Bolti á fjær og skallað í annað horn.
1. mín
Fyrsta brot
Selfoss fær auka á miðjum velli, handsamað vel af Ólaf.
1. mín
Leikur hafinn
Pétur flautar af stað
Þettar farið af stað!
Fyrir leik
Liðinn að labba inná
Frábærar aðstæður fyrir hörku leik í dag. Virkilega vel mætt á hjá heimamönnum og gestum, enda mikið undir í dag.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Þegar þessi lið mættust síðast á Selfossi var skemmtilegt 2-2 jafntefli niðurstaðan.
Leiknir voru 2-0 undir í hálfleik eftir tvennu frá Aron Fannar Birgisson. Það var Dagur Ingi Hammer Gunnarsson sem skoraði síðan bæði mörk Leiknis og Patryk Hryniewicki fékk seinna gula á 94 mín.

Dómarar leiksins
Pétur Guðmundsson er á flautunni, honum til aðstoðar: Arnþór Helgi Gíslason og Jovan Subic.
Eftirlitsmaðurinn er Ingvar Örn Gíslason.
Eftirlitsmaðurinn er Ingvar Örn Gíslason.

Fyrir leik
Selfoss
Eftir sigur í sterkan 3-2 sigur í síðasta leik gegn Þór eru Selfyssingar með 19 stig í 9.sæti.
Ótrúlegt mark Aron Lucas Vokes á 90+1 í síðasta leik skilaði 3 mikilvægum stigum, vilja gestirnir eflaust reyna fylgja góðum úrslitum eftir hér í dag.
Sigur í dag staðfestir áframhaldandi veru þeirra í Lengjudeildinni.
Reynir Freyr Sveinsson er í banni eftir uppsöfnuð gul spjöld.

Leiknir R.
Leiknir situr í 11.sæti fyrir leik dagsins með 17 stig.
3-1 tap í síðasta leik gegn Njarðvík, þar sem Adam Örn skoraði eina mark Leiknis.
Nú mættir á heimavöll í mikilvægan leik gegn nýliðunum frá Suðurlandinu.
Sigur hér myndi henda þeim fyrir ofan Selfoss fyrir lokaumferðina þar sem þeir fara í Egilshöllina og mæta Fjölni.

Fallbaráttuslagur á Domusnovavellinum
Komiði sæl og blessuð,
Leiknir R. og Selfoss mætast í dag á heimavelli Leiknis manna.
Næst síðasta umferðin og stig munu skipta sköpum hér í dag!
Leiknir R. og Selfoss mætast í dag á heimavelli Leiknis manna.
Næst síðasta umferðin og stig munu skipta sköpum hér í dag!
Fyrir leik
Næstsíðasta umferð Lengjudeildarinnar
21. umferð - laugardagur 6. september
16:00 HK-Þróttur R. (Kórinn)
- Dómari: Twana Khalid Ahmed
16:00 Grindavík-ÍR (Stakkavíkurvöllur)
- Dómari: Helgi Mikael Jónasson
16:00 Keflavík-Njarðvík (HS Orku völlurinn)
- Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
16:00 Þór-Fjölnir (Boginn)
- Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
16:00 Leiknir R.-Selfoss (Domusnovavöllurinn)
- Dómari: Pétur Guðmundsson
16:00 Fylkir-Völsungur (tekk VÖLLURINN)
- Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

Hörku leik lokið og Leiknir komnir úr fallsæti og senda Selfyssinga í fallsæti.