SKÝRSLAN: Óvænt úrslit í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Grindvíkingar voru mjög góðir í þessum leik og vörnin hjá ÍR var ekki upp á sitt besta þegar kom að mörkunum.
Bestu leikmenn
1. Adam Árni Róbertsson - Grindavík
Adam Árni átti frábæran leik og kom að öllum mörkum heimamanna, skoraði tvö og lagði upp eitt!
2. Kristófer Leví Sigtryggsson - Grindavík
Kristófer Leví átti stórleik í marki Grindavíkur og varði ógrynni af skotum. Einnig var þetta fyrsti leikur hans í marki Grindavíkur og fyrsti leikur í tvö ár.
Atvikið
Ég myndi segja annað markið hans Adams þar sem smá samskiptaleysi kom upp milli varnarmanns og markmanns og í kjölfarið slapp Adam í gegn og skoraði.
Hvað þýða úrslitin?
Grindvíkingar eru komnir í 8. sæti og eru 2 stigum frá falli, en ÍR situr í 5. sæti og halda umspilssætinu enn sem komið er. Keflvíkingar gætu hrifsað það af þeim í lokaumferðinni.
Vondur dagur
Enginn átti í raun slæman dag, vörnin hjá ÍR hefði getað gert betur þegar kom að seinna marki Adams þegar hann slapp í gegn.
Dómarinn - 5
Helgi með fínasta leik þó það voru nokkrir dómar sem voru



