Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
4 - 1
Þór/KA
Þór/​KA
Gyða Kristín Gunnarsdóttir 20'1 - 01 - 135' Karen María Sigurgeirsdóttir Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 60'2 - 1Gyða Kristín Gunnarsdóttir 81'3 - 1Fanney Lísa Jóhannesdóttir 85'4 - 1
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Stórsigur á Samsungvellinum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var ákveðnin í Stjörnukonum í seinni hálfleik, þær tóku öll völd á vellinum, settu 3 mörk og hefðu klárlega getað sett fleiri.

Bestu leikmenn

1. Gyða Kristín Gunnarsdótti

Átti frábæran leik í dag, sí ógnandi fram á við, skoraði tvö mörk og var með tvær stoðsendingar

2. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir

Var öflug í dag, setti mikilvægt mark og var ótrúlega öflug að koma sér í góðar stöður. Verð líka að nefna Fanneyju Lísu sem kom inn á, ótrúlega hröð og átti bæði stoðsendingu og mark á þessu korteri sem hún var inn á

Atvikið

Set þetta á markið hjá Úlfu Dís. Stjörnukonur voru búnar að liggja í sókn og Úlfa sjálf búin að eiga tvö dauðafæri á undan markinu en inn fór boltinn í þetta skiptið og Stjarnan komin yfir.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að Stjarnan er komin upp fyrir Þór/KA og í 5. sætið með 22 stig. Þór/KA hins vegar tapa sínum öðrum leik í röð og detta niður í 6. sætið með 21 stig.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Margréti Árnadóttur ekki þó fyrir frammistöðuna sem var ágæt þann tíma sem hún spilaði. Hún þurfti hins vegar að fara af velli í fyrri hálfleik eftir tvær aðhlynningar. Vonandi er þetta þó ekkert alvarlegt.

Dómarinn - 5

Þokkaleg frammistaða hjá dómurunum í dag, spurning með markið sem dæmt var af Stjörnunni ég held að það hefði alltaf átt að vera mark svo voru nokkrar skrítnar ákvarðanir og rangstöðudómar, Heilt yfir samt bara þokkalegt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.