SKÝRSLAN: Þórsarar á toppinn og Fjölnismenn falla í 2. deild
Hvað réði úrslitum?
Vítið sem Fannar Daði sækir á lokamínútum leiksins og Sigfús Fannar skorar svo úr því og kemur Þórsurum í 2-1 og á topp deildarinnar
Bestu leikmenn
1. Kristófer Kristjánsson
Hann var sprækur í dag Fjölnismenn réðu ekkert við hann í dag og hann átti mörg góð hlaup upp völlinn og eina stoðsendingu
2. Sigfús Fannar
Ætla bara gefa honum þetta útaf hann klárar leikinn fyrir þórsara og var sprækur hefði mögulega átt að skora annað mark samt. Aron Birkir á líka alveg skilið shout hérna!
Atvikið
Vítið sem Þórsarar fá á 84 mínútu Fannar sleppur einn í gegn og tekur boltann framhjá Sigurjóni sem tekur Fannar niður og Gunnar dæmir víti sem Sigfús skorar úr.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar fara á toppinn og spila úrslitaleik um hverjir fara upp í Bestu deildina við Þrótt á Laugardaginn, Fjölnismenn eru fallnir niður í 2.deild!
Vondur dagur
Sigurjón Daði Harðarson fær á sig 2 mörk og gefur vítið sem klárar þennan leik, hann varði nokkrum sinnum vel en þessi mistök að gefa þetta víti er nóg til að hann eigi vondan dag
Dómarinn - 9
Gunnar Oddur dæmdi þennan leik bara vel spurning um eina vítaspyrnu fyrir Þórsara þegar það er hangið aftaní Christian Greko en annars nelgdi hann bara alla dóma að mínu mati


