Fotbolti.net
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
HK
HK
Lengjudeild karla
Kórinn
5 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
Magnús Arnar Pétursson 7'1 - 0Ívar Örn Jónsson (víti) 49'2 - 02 - 166' Hlynur ÞórhallssonJóhann Þór Arnarsson 79'3 - 1Jóhann Þór Arnarsson 85'4 - 14 - 287' Njörður ÞórhallssonJóhann Þór Arnarsson 90'5 - 2
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: HK með annan fótinn í umspilið

Hvað réði úrslitum?

HK mættu grimmari til leiks og komust yfir snemma leiks en eftir það gerðist ekki mikið í fyrri hálfleik og mikið um hita og baráttu. Síðari hálfleikuirnn bauð upp á veislu. Þróttarar komu grimmir inn í seinni hálfleikinn og minnkuðu muninn en þá setti Hermann Hreiðarsson Jóhann Þór inn á völlinn og hann skoraði þrennu á 10 mínútna kafla og það kláraði leikinn fyrir HK.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Þór Arnarsson (HK)

Hat-trick hero. Kom inn á sem varamaður og skoraði þrjú mörk. Alvöru innkoma.

2. Ívar Örn Jónsson ´(HK)

Ívar var frábær á vellinum í dag. Fískðaði víti sem hann skoraði svo sjálfur úr.

Atvikið

Þrennu mómentið hjá Jóhanni - Fékk boltann og keyrði inn í átt að marki Þróttar og kláraði frábærlega framhjá Þórhalli.

Hvað þýða úrslitin?

HK er svo gott sem komið í umspilið en liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 37.stig. Þróttur er í öðru sæti deildarinnar með 41.stig og eiga framundan úrslitaleik við Þór á heimavelli næstu helgi.

Vondur dagur

Liam Daði - Liam Daði var ekki mikið sjáanlegur á vellinum í dag.

Dómarinn - 8

Twana dæmdi þennan leik vel. Ég get alveg ímyndað mér að þetta hafi verið erfiður leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.