PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
16:00 0
0
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
16:00 0
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
27' 0
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Vestri
28' 0
1
Grindavík
Besta kvenna
Valur
16:00 0
0
Grind/Njarð
Besta kvenna
Fram
72' 1
3
ÍBV
Vestri
0
1
Grindavík
0-1 Ingi Þór Sigurðsson '19
25.04.2026  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Milt vorveður, 5 stiga hiti smá úði og smá vindur.
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
6. Ibrahima Balde
8. Imran Mehanovic
12. Thibang Phete
17. Gunnar Jónas Hauksson
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Breki Þór Hermannsson
27. Chriss-Albin Mörfelt
29. Konstantin Cheshmedjiev
77. Sergine Fall
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
7. Jacob Stensson
9. Pétur Bjarnason
10. Þórður Gunnar Hafþórsson
11. Johannes Selvén
13. Albert Ingi Jóhannsson
14. Birkir Eydal

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Jón Þór Hauksson (Þ)
Vladan Djogatovic
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson
Jonathan Awrohum

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
28. mín
Albin og Imran enn og aftur með frábært spil og Imran kemst í góða stöðu en skýtur boltanum fram hjá.
27. mín
Ekkert verður úr horninu en Vestri að taka yfir leikinn sem stendur.
26. mín
Vestri með góða sókn og fá horn Góða sókn hjá Vestra og Cafu á gott skot sem er að fara inn en gestirnir koma honum aftur fyrir í horn. Betra hjá Vestra
24. mín
Vestri aðeins að svara fyrir sig en Grindacík hafa verið mun betri þessar fyrstu 25 mín
23. mín
Horn Vestri Albin með fasrt skot sem Victor skallar aftur fyrir.
22. mín
Vestri fær hornspyrnu niður við hornfána hægra megin, fór í höndina á einum Grindvíkingunum.
21. mín
Hornspyrnan beint á Hjörvar sem grípur vel.
20. mín
Vestri fær horn
19. mín MARK!
Ingi Þór Sigurðsson (Grindavík)
Stoðsending: Rafael Victor
1:0 Grindavík, Ingi Þór skorar! Frábært spil hjá Grindavík. Victor kemst upp vinstra megin og á glæsilega sendu á markteiginn á Inga sem skorar með glæsilegri hælspyrnu. 1:0 Grindavík
17. mín
Vestra menn eru aðeins að vakna eftir hæga byrjun. Albin og Imran eru að skapa miklu hættu vinstra megin á vellinum.
14. mín
Ekkert verður úr horninu, það er að bæta í vindinn það sést þegar liðin setja boltann í loftið
13. mín
Fyrsta færi Vestra Vestri tætir vörn Grindavíkur í sig Albin sendir Imran einn í gegn en Hjörvar ver frábærlega. Fyrsta horn Vestra
11. mín
Grindavík að ógna en Vestra menn komast fyrir þetta
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Grindavík hafa verið betri þessar fyrstu 10 mín
7. mín
Fyrsta færið Grindavík á lélega hornspyrnu sem fer yfir allt en ná koma boltanum inn í aftur og Valur fær ágætis færi en hittir ekki boltann og Marvin ver auðveldalega. Grindavík hafa byrjað þennan leik mun betur.
6. mín
Grindavík fær horn
4. mín
Leikurinn fer hægt af stað bæði lið að þreyfa á hvort öðru.
1. mín
Vestri leika hérna í nýjum búningum í dag sem þykja einkar glæsilegir með mynd af Bolungarvík.
1. mín
Leikur hafinn
Grindavík hefja leikinn og leika í átt að firðinum
Fyrir leik
Breki Þór sem er í byrjunarliði Vestra var á láni hjá Grindavík í fyrra. Robert Blakala sem er varamarkvörður Grindavíkur spilað hérna fyrir Vestra um árið.
Fyrir leik
Hlustaðu á þáttinn Lengjudeildin hefur aldrei verið öflugri og fékk hún stóra sviðið í útvarpsþættinum á X977. Þátturinn er kominn á allar veitur og í spilarann á .Net:

Fyrir leik
Bæði lið eru með nýja þjálfara fyrir tímabilið. Þeir fóru ekki langt heldur réðu bæði heimamenn. Ray tók við Grindavík eftir farsælan ferill sem leikmaður þar, Badu tekur við Vestra eftir farsælan ferill sem þjálfari hér í bæ og leikmaður.
Fyrir leik
Liðin mættu síðast í deildarkeppni 2023. Fyrri leikurinn fór hérna fram fyrir vestan í miklum vatnaleik, leikurinn átti að fara fram á föstudegi en var frestað vegna þess að völlurinn líktist sundlaug.Þá var gras hér þannig að svona vandamál heyra sögunni til. Grindavík vann þann leik 2-0 og seinni leikurinn fór 1-1. Vestri fór upp það tímabil.
Fyrir leik
Gunnleifur Orri á bekknum Gunnleifur Orri Gunnleifsson er á bekknum en Grindavík keyptu hann frá Breiðablik í gær.
Fyrir leik
Bæði lið voru í hörkufallbaráttu í fyrra Grindavík í Lengjunni og náðu að bjarga sér, Vestri hins vegar féll úr Bestu deildinni. Fótbolti.net spáir Vestra í 6 sæti og Grindavík í því 7 sæti. Bæði lið stefna samt klárlega hærra en það.
Fyrir leik
Grindavík
4-2-3-1
Hjörvar
Stefán-Árnór-Damir-Christian
Mikael Máni-Haraldur
Ingi-Valur-Rúnar
Rafael
Fyrir leik
Vestri
4-4-2
Marvin
Elmar-Konstantin-Cafu-Edson
Albin-Gunnar Jónas-Imran-Fall
Balde-Breki Þór
Fyrir leik
Grindavík byrja með sama lið og í bikarnum Grindavík er með sama byrjunarlið sem sló Keflavík útúr bikarnum í byrjun mánaðar.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn. Vestri gerir 2 breytingar frá sigrinum á Leikni. Birkir Eydal og Selven fá sér sæti á bekknum. Edson byrjar sinn fyrsta leik sem var nýkominn fyrir fyrsta leikinn og Gunnar Jónas kemur líka inn.
Fyrir leik
Verið velkomin á Keracisvöllinn Góðan daginn, verið velkomin til leik í lýsingu á Vestri-Grindvík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar 2026. Umferðinn byrjaði með látum í gær þar sem 14 mörk voru skoruð í 2 leikjum, vonum að sú veisla haldi áfram hérna í dag. Aðstæður eru frábærar hérna í dag 5 sitga hiti, smá úði og létt gola.
Byrjunarlið:
12. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
7. Stefán Jón Friðriksson
10. Ingi Þór Sigurðsson
11. Valur Þór Hákonarson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
18. Christian Bjarmi Alexandersson
19. Rafael Victor
20. Mikael Máni Þorfinnsson
21. Rúnar Ingi Eysteinsson
28. Arnór Gauti Úlfarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. Friðrik Franz Guðmundsson
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
22. Lárus Orri Ólafsson
23. Sindri Þór Guðmundsson
26. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Eysteinn Rúnarsson
Robert Blakala
Tómas Breki Bjarnason
Aron Benediktsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: