Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
Besta karla
Þór
16:00 0
0
ÍA
Lengjudeild karla
Grindavík
16:00 0
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Ægir
27' 0
0
Vestri
Besta karla
ÍBV
76' 0
2
Víkingur R.
ÍBV
0
2
Víkingur R.
0-1 Óskar Borgþórsson '51
0-2 Gylfi Þór Sigurðsson '56
17.05.2026  -  13:00
Hásteinsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Nokkuð hvasst en þurrt.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 134
Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson ('59)
8. Bjarki Björn Gunnarsson
11. Filip Stuparevic ('59)
16. Milan Jezdemirovic
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor ('71)
42. Pisco ('71)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson
9. Liam Daði Jeffs ('71)
10. Viggó Valgeirsson
14. Arnar Breki Gunnarsson
22. Eiður Atli Rúnarsson
25. Alex Freyr Hilmarsson ('71)
27. Róbert Elís Hlynsson ('59)
28. Heiðmar Þór Magnússon
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('59)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Elías J Friðriksson
Elías Árni Jónsson
Filipe Andre Alexandre Machado
Jakob Fannar Möller
Branisalv Bajic

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
76. mín
Víkingur fær hornspyrnu Gylfi með skotið fyrir utan teig en Alex nær að koma sér fyrir og boltinn fer aftur fyrir.
75. mín
Daníel tók spyrnuna og reyndi bara skotið en það er beint á Ara sem grípur boltann.
73. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teig.
71. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
71. mín
Inn:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV) Út:Vicente Valor (ÍBV)
71. mín
Inn:Liam Daði Jeffs (ÍBV) Út:Pisco (ÍBV)
69. mín Gult spjald: Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
hefnibrot á Pisco sem hafði brotið á Gylfa rétt áður en Pétur dæmdi ekki neitt á það.
67. mín
Frekar lítið að gerast síðustu mínútur..
63. mín
Inn:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.) Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
61. mín
Vicente með ágætis sendingu inn á teig Víkinga en þeir koma boltanum í burtu.
59. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV) Út:Sesar Örn Harðarson (ÍBV)
59. mín
Inn:Róbert Elís Hlynsson (ÍBV) Út:Filip Stuparevic (ÍBV)
56. mín MARK!
Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
GYLFI MEÐ MARK FRÁ MIÐJU!! Milan gefur til baka á Ara, markvörð ÍBV, sem ætlar að lúðra boltanum fram. Boltinn fer ekki lengra en á miðjuna þar sem Gylfi er og hann setur hann í autt markið frá miðju!

0-2!!!
55. mín
EYJAMENN Í FÆRI Filip kom boltanum á Sesar úti vinstra megin sem kemur nær skoti en boltinn dettur fyrir Vicenta af varnarmanni Víkinga. Vicente tíar boltann fyrir Filip en skot hans af varnarmanni og framhjá.
51. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Elías Már Ómarsson
Víkingar komast yfir Elías Már með fyrirgjöf frá vinstri inn á teiginn á Óskar sem nær skallanum. Skallinn er aftur á ?óti mjög laus og ég set klárlega spurningamerki við Ara í þessu marki en inn fór hann og Víkinga leiða 0-1!!!
49. mín
Helgi með sendingu af vítateigshorninu sem fer svo bara rétt fram hjá markinu.
48. mín
SESAR nálægt því að sleppa í gegn!!! Filip með flotta sendingu í gegn á Sesar sem er eiginlega sloppinn einn í gegn en eitt slæm snerting á boltann og þetta rennur út í sandinn.
47. mín
Bjarki Björn með langa sendingu fram ætlaða Filip en Ekroth er fyrstur á boltann og kemur honum á Aron Snæ.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn Þetta er farið í gang aftur!

45. mín
Hálfleikur
Frekar bragðdaufum fyrri hálfleik lokið.

Víkingar hafa verið meira með boltann en lítið um alvöru færi. Eyjamenn eru meðp þétta vörn og skipulagðir.

Vonandi fáum við skemmtilegri seinni hálfleik og einhver mörk!
45. mín
Felix með aukaspyrnuna á fjær. Sigurður Arnar fer upp í skallaboltann og er dæmdur brotlegur.
44. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Víkinga. Sesar er tekinn niður.
41. mín
SLÁIN HJÁ GYLFA Gylfi með skotið fyrir utan teig sem fer af varnarmanni ÍBV og dettur ofan á slánna. Ari kom við boltann og Víkingur fær hornspyrnu.
39. mín
Ari næstum búinn að koma sér í bullandi vandræði. Leikur boltann áfram og Elías er næstum búinn að ná boltanum af honum en hann kemur boltanum í burtu að lokum.
36. mín
FÆRI HJÁ VÍKINGUM Óskar fær boltann úti vinstra megin og fer fram hjá Milan og kemur með boltann út í teiginn á Helga sem skýtur í fyrsta en skotið er frekar slakt og fer framhjá og Víkingar héldu boltanum áfram inn á vellinum. Þetta rann svo út í sandinn.
35. mín
Sesar kemur sér inn í teig og virðist vera sleginn í andlitið óviljandi. Pétur dæmir ekki neitt.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Óskar kemur með fyrirgjöf inn á teig ÍBV e Ari kemur úr og handsamar boltann.
29. mín
Felix geysist upp vinstri kantinn og reynir að koma boltanum inn á teig en Víkingar setja boltann í innkast.
28. mín
Gylfi reynir að finna Óskar upp vinstri kantinn en sendingin og löng og markspyrna.
27. mín
Helgi með fyrirgjöf frá vinstri en hún er slök og fer beint afturfyrir.
25. mín
Ármann með hættulega fyrirgjöf inn á teig Eyjamanna en þeir ná að koma boltanum í burtu.
24. mín
Ármann brýtur á Milan Tomic og akkurat á sama augnablik skorar Gylfi með góðu skoti en dómarinn búinn að flauta.
22. mín
VICENTE stelur boltanum af Aroni Helgi sendi boltann til baka á Aron og Vicente nær boltanum af honum en snertingin er aðeins og löng og boltinn fer aftur fyrir.
22. mín
Gylfi með hornspyrnuna. Boltinn barst á Helga á vítateigslínunni sem tók skotið en það er framhjá.
21. mín
Víkingur fær hornspyrnu..Ármann reyndi að fara fram hjá Felix sem setti boltann aftur fyrir.
20. mín
Ekki mikið að frétta þessa stundina, mikið fram og til baka og lítið um færi.
16. mín
Felix með flotta fyrirgjöf alla leið á fjær á Milan sem reynir að setja boltann í fyrsta fyrir markið en Gunnar Vatnhamar endar á setja boltann aftur fyrir.
13. mín
Valdimar með fyrirgjöfina frá hægri. Óskar nær skallanum en hann er máttlaus og beint í hendurnar á Ara í marki Eyjamanna.
11. mín
Vicente fékk boltann fyrir utan teig Víkinga í fínni skotstöðu en Víkingar ná að koma sér fyrir skotið og hreinsa.
10. mín
Valdimar með fyrirgjöfina inn á teiginn en Eyjamenn hreinsa í horn.
9. mín
Víkingar eru mikið með boltann en virðast ekki finna smugu í gegnum þétta vörn ÍBV.
6. mín
Sesar reynir að setja Vicente í gegn en sendingin er of löng og beint í hendur á Aroni Snæ.
3. mín
2. mín
Bjarki Björn með fyrirgjöf frá hægri sem svífur yfir allan pakkan en Eyjamenn fá horn í kjölfarið, fór greinilega í leikmann Víkings.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Víkingar eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.

Fyrir leik
Innkastið verður í beinni í kvöld klukkan 21
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV er meðal varamanna en hann er að snúa aftur úr meiðslum.

Ármann Ingi Finnbogason er meðal byrjunarliðsmanna Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Eyjamenn töpuðu á Akureyri í síðustu umferð
Fyrir leik
Víkingar voru sjóðheitir í síðasta deildarleik og unnu Þór 6-0
Fyrir leik
Víkingar geta komist á toppinn... í bili að minnsta kosti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar tóku bátinn í gær, laugardag, og æfðu hér í Vestmannaeyjum.

Fyrir umferðina er Víkingur í 2. sæti en getur með sigri í Eyjum komið sér á toppinn, í það minnta um stundarsakir því topplið KR tekur ekki á móti Fram fyrr en klukkan 18:15.

Víkingur hefur unnið fimm deildarleiki í röð en ÍBV hefur tapað fimm í röð og er í neðsta sæti með aðeins eitt stig.
Fyrir leik
Dómari: Pétur Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrir leik
Sjöunda umferð Bestu deildarinnar spiluð í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

sunnudagur 17. maí

Besta karla
13:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar ('71)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
69. Ármann Ingi Finnbogason ('63)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m)
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason ('71)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson ('63)
24. Davíð Örn Atlason
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Daníel Darri Arnarsson

Gul spjöld:
Gylfi Þór Sigurðsson ('69)

Rauð spjöld: